Frjáls verslun - 01.04.1968, Side 34
FRJALS VERZLUN
undirrituðu öll sex ríki Efnahags-
bandalagsins samning, þar sem
þessar þrjár framkvæmdastjórnir
og ráðherranefndir voru samein-
aðar í eina framkvæmdastjórn og
í því augnamiði, að þessir þrír að-
ilar eða stofnanir yrðu síðan að
lokum sameinaðar.
Samningurinn um þennan sam-
runa tók gildi 1. júlí 1967, og ein
ráðherranefnd og ein fram-
kv.stjórn tóku við þeim verkefn-
um, sem ráðherranefndir og fram-
kv.nefndir stofnananna þriggja, þ.
e. Kola- og stálsamsteypunnar,
Efnahagsbandalagsins og Kjarn-
orkumálastofnunarinnar höfðu
farið með hver fyrir sig.
FRAMKVÆMDASTJÓKNIN.
í framkvæmdastjórninni eiga
sæti 14 fulltrúar — þrír frá Vest-
ur-Þýzkalandi, Frakklandi og
Ítalíu, tveir frá Hollandi og Belg-
íu og einn frá Luxembourg. Inn-
an þriggja ára frá samruna þeim,
sem átti sér stað í júlí 1967 og
greint var frá hér að framan, á
að fækka tölu þessara fulltrúa
niður í níu. Fulltrúarnir í fram-
kvæmdastjórninni eru skipaðir
með samkomulagi milli ríkis-
stjórna aðildarríkjanna sex fyrir
fjögurra ára tímabil í senn, og má
endurskipa þá. Forseti stjórnar-
innar og varaforsetar eru til-
nefndir úr hópi fulltrúanna fyrir
tveggja ára tímabil í einu, og má
þá tilnefna þá að nýju.
Fulltrúarnir í framkvæmda-
stjórninni gefa heiti um að vera
óháðir ríkisstjórnum landa sinna
og setja ekki hagsmuni þjóða
sinna ofar hagsmunum annarra
þjóða bandalagsins né heldur að
taka einstaka hagsmunahópa
fram yfir aðra. Þeir bera sameig-
inlega ábyrgð á ákvörðunum sín-
um, sem eru teknar með atkvæða-
greiðslu, þar sem meirihlutinn
ræður.
Til viðbótar því að vera til-
lögugjafi um gerðir bandalagsins
og handhafi sérstaks framkv.valds
starfar framkvæmdastjórnin sem
meðalgöngumaður milli ríkis-
stjórna aðildarríkjanna í málefn-
um bandalagsins og gætir þess, að
bandalagssamningunum sé fram-
fyigt.
Sökum þess að yfirstjórn Kola-
og stálsamsteypunnar og Efna-
hagsb.lagsins og Kjarnorkumála-