Frjáls verslun - 01.04.1968, Side 37
FRJÁL5 VERZLUN
35
í málefnum Kjarnorkumála-
stofnunarinnar og sjálfs Efnahags-
bandalagsins tekur ráðherra-
nefndin lokaákvarðanir, en hún
gerir það einungis á grundvelli
tillagna, sem framkvæmdastjórn-
in ber fram, og getur því aðeins
breytt slíkum tillögum, að sam-
hljóða samþykkt verði gerð þar
að lútandi. Á fyrstu átta árunum
urðu ákvarðanir ráðherranefndar-
innar á ýmsum sviðum að vera
teknar samhljóða, en aukinn
meirihluti, sem er grundvallar-
regla við atkvæðagreiðslu sam-
kvæmt Rómarsamningunum, varð
aðalreglan frá því í janúar 1966.
Frakkland, Vestur-Þýzkaland og
Ítalía hafa fjögur atkvæði hvert
í atkvæðagreiðslum, þar sem auk-
inn meirihluti ræður, Belgía og
Holland tvö atkvæði og Luxem-
bourg eitt. Varðandi tillögur
framkvæmdastjómarinnar skapa
12 af atkvæðunum, sem þannig
eru 17, meirihluta. í öðrum mál-
um verða atkvæði að minnsta
kosti fjögurra þjóða að vera falin
í þessum 12 atkvæðum.
Fundir ráðherranefndarinnar
eru undirbúnir af fastanefnd, sem
skipuð er fulltrúum aðildarríkj-
anna.
EFNAHAGSBANDALAGIÐ.
Á þingi Efnahagsbandalagsins
eiga sæti 142 menn, og eru þeir
kjörnir af og úr röðum þing-
manna, sem sæti eiga á þjóðþing-
um aðildarríkjanna. Samkvæmt
Rómarsamningunum er gert ráð
fyrir því endanlega, að þeir verði
kosnir beinum kosningum til
Efnahagsbandalagsins í almenn-
um kosningum. Áætlanir í þessu
augnamiði voru gerðar af þinginu
1960 og afhentar ráðherranefnd-
inni, en á miðju ári 1967 var ekki
farið að gera neinar ráðstafanir í
þessa átt. Framkvæmdastjórnin
verður að gefa Efnahagsbanda-
lagsþinginu skýrslu á hverju ári,
sem getur vikið stjórninni frá
hvenær sem er með vantrausts-
ályktun, sem samþykkt verður að
vera með % hlutum atkvæða.
Álits þingsins verður að ieita, áð-
ur en ákvarðanir eru teknar í
vissum málefnum varðandi hinn
sameiginlega markað og Kjarn-
orkumálastofnunina. Þá hefur
þingið rétt til þess að bera fram
tillögur um breytingar á fjár-
hagsáætlun Efnahagsbandalags-
ins.
Þing Efnahagsbandalagsms kem-
ur saman um 8 sinnum á ári, og
standa fundir þess hverju sinni
í rúmlega viku. Enn fremur kýs
það 12 fastanefndir, sem hafa ná-
kvæmt eftirlit með störfum fram-
kvæmdastjórnarinnar. Fulltrúar á
þinginu bera oft fram skriflegar
eða munnlegar fyrirspurnir til
framkv.stjórnarinnar og stundum
einnig til ráðherranefndarinnar.
Þingmennirnir skiptast í fjóra
pólitíska hópa — kristilega demó-
krata, sósíalista, frjálslynda og
þingmenn Lýðræðissambands Ev-
rópu — og sitja þessir þingmenn
saman án tillits til þjóðernis
þeirra.
DÓMSTÓLLINN.
Hæstiréttur, skipaður sjö dóm-
urum (að minnsta kosti einum
frá hverju aðildarríki), fer með
dómsvald til þess að skera úr um,
hvort gerðir framkvæmdastjórn-
arinnar, ráðherranefndarinnar,
ríkisstjórna aðildarríkjanna og
annarra aðila séu í samræmi við
samninga Efnahagsbandalagsins.
Þessi dómstóll getur ómerkt.
ákvarðanir sjálfrar framkvæmda-
stjórnarinnar og ráðherranefnd-
arinnar. Málskot til dómstólsins
gegn aðildarríki fyrir að hafa far-
ið í bága við skyldur sínar sam-
kvæmt samningum Efnahags-
bandalagsins geta komið frá fram-
kvæmdastjórninni eða öðrum að-
ildarríkjum. Aðildarríki, stofnanir
bandalagsins, fyrirtæki og ein-
staklingar geta einnig höfðað mál
fyrir dómstólnum gegn fram-
kvæmdanefndinni og ráðherra-
nefndinni fyrir að brjóta ákvæði
Efnahagsbandalagssamninganna.
Dómstóllinn getur einnig kveðið
upp dóma í málum, sem dómstól-
ar í einstökum aðildarríkjum
skjóta til þeirra varðandi túlkun
samninganna og lagalega fram-
kvæmd þeirra.
Mál, sem koma fyrir dómstól-
inn, eru tekin fyrir í tveimur þátt-
um, annars vegar munnlega en
hins vegar skriflega. Að því loknu
reifar annar af tveimur aðallög-
mönnum dómstólsins málið og
gerir tillögu um dómsniðurstöðu
til dómaranna. Þeir þurfa hins
vegar ekki að fallast á álit hans.
Þeir komast að eigin dómsniður-
©
VELJUAA ÍSLENZKT
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Fjölbreytt
framleiðsla
á kexi
Matarkex
Mirentkex
Sakkulaðiltúðað
kex
KEXVERKSMIDJAN FRÓN HF.
SKÚLAGÖTU 28 - REYKJAVÍK