Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 50
4B
FRJALS' VERZLUN
anríkisráðherrafundi í Bruxelles
í desembermánuði s.l. Þannig
verður haldið áfram á sömu braut
og hingað til, viðhorfin geta tekið
breytingum, en grundvöllurinn er
enn sá sami, og samningurinn
heldur gildi sínu um ófyrirsjáan-
lega framtíð.
F.V.: Hvert er hlutverk liðs-
manna úr Bandaríkjaher, sem
hafa aðsetur d Keflavíkurflug-
velli og í öðrum stöðvum varnar-
liðsins hérlendis?
E. I.: Varnarliðið hér á landi er
partur af varnarkerfi bandalags-
ins, hlekkur í heilsteyptri keðju,
sem nær frá meginlandi Evrópu
þvert yfir Atlantshaf til Norður-
Ameríku. ísland er raunar mjög
nálægt miðju þess svæðis, sem At-
lantshafssamningurinn tekur til,
en það er skilgreint nákvæmlega
í 6. grein samningsins. Hlutverk
þessa kerfis hér á landi, sem ann-
ars staðar, er að hafa gát á hugs-
anlegum árásaraðilum og gera
nauðsynlegar ráðstafanir til varn-
ar, ef til tíðinda dregur. Hér eru
radarstöðvar, könnunarflugvélar,
fjarskiptastöðvar, sveit orrustu-
þota og annar liðsafli ýmiss kon-
ar.
F.V.: Hversu öflugan innrásar-
her er talið að varnarliðið gœti
brotið á bak aftur, og hvenœr
vœri að vœnta hjálpar frá öðrum
bandalagsþjóðum okkar, þegar
víst þœtti að innrás í landið vœri
í aðsigi?
E. I.: Vegna öflugra varna, sem
byggjast á pólitískri einingu og
hemaðarmætti bandalagsþjóð-
anna, kemur vonandi aldrei til
árásar á NATO-land, hvorki ís-
land né annað aðildarríki. Banda-
ríkjamenn, Bretar og raunar fleiri
hafa stöðugt öflugan flota á At-
lantshafi til að koma í veg fyrir
hugsanlega árás. Hingað kom ný-
lega flotadeild, sem sett var á
stofn á siðasta ráðherrafundi og
taldi skip af fimm þjóðernum.
Þar gat að sjá samheldni NATO-
þjóðanna í verki rétt við bæjar-
dyr okkar, ef svo má að orði
kveða. Síðan eru til taks heil her-
fylki beggja vegna Atlantshafs,
sem risaflugvélar flytja landa á
milli með öllum útbúnaði á nokkr-
um klukkutimum. Nýlega hefur
slíkt herfylki verið að æfingum
í Noregi, en í þessari æfingu tóku
þátt herdeildir frá mörgumNATO-
þjóðum.
F.V.: Teljið þér sennilegt, að
innrás óvinahers á íslandi myndi
leiða til gagnárásar bandalags-
þjóða okkar og stórstyrjaldar í
Evrópu og í Vesturheimi?
E. J.: Skyldur samningsaðila
eru ótvíræðar samkvæmt 5. grein,
sem ég hef þegar minnzt á. Koma
skal til hjálpar þeirri þjóð, sem
orðið hefur fyrir árás, og er
þar meðtalin sérstaklega beiting
vopnavalds. Það fer ekki á milli
mála, að innrás í NATO-svæðið
leiðir af sér gagnárás. Vissan um
geigvænlegar afleiðingar af slíkri
innrás aftrar einmitt hugsanleg-
um árásaraðilum frá því að að-
hafast nokkuð í þá veruna. Væri
bandalagið veikt fyrir, myndi
þetta horfa dálítið öðru vísi við af
sjónarhóli þessa hugsanlega árás-
araðila. Styrkur NATO er bezta
vörnin, enda hefur tekizt að koma
í veg fyrir vopnuð átök á svæð-
inu, sem Atlantshafssamningur-
inn tekur til. Við þetta miðast
Frá Sovétríkjunum
RAZNOIMPORT MOSKVA
Hjólbarðar flestar stærðir og gerðir.
RAZNOEXPORT MOSKYA
Rúðuglér í öllum þykktum og stærðum
A. B. C. gæðaflokkar. — Rafmagnsperur „OREOL"
EXPORT L.E.S. MOSKVA
Dagblaðapappír, Harðtexplötur, Trétexplötur.
UMBOÐSMENN:
MARS TRADING CO. HF. LAUGAVEG 103 - SÍMI 17373