Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 58

Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 58
56 FRJÁLS' VERZLUN ATLANTSHAFSRAÐID HELDUR FUND I REYKJAVÍK I FYRSTA SINN Atlantshafsráðið, æðsta stjórn Atlantshafsbandalagsins bæði á sviði varnarmála og annarra mála, kemur í fyrsta skipti saman til fundar á íslandi dagana 24.—25. júní n.k. Er það svonefndur vor- fundur utanríkisráðherra hinna 15 aðildarríkja bandaíagsins, sem hér fer fram, en þeir ráðherrarn- ir hittast að jafnaði tvisvar á ári. Hefur sú venja skapazt, að annar þessara funda er haldinn í aðal- stöðvum bandalagsins, sem nú eru í Bruxelles, en hinn í höfuðborg- um aðildarríkjanna til skiptis. Þannig hefur verið tryggð æskileg tilbreyting og tækifæri gefizt til nokkru nánari kynna afsamstarfs- þjóðunum. Áður hafa ráðherrafundir bandalagsins verið haldnir í höf- uðborgum allra aðildarríkjanna nema íslands. Öllum var ljóst, að ekki yrði vandkvæðalaust að halda svo umfangsmikinn fund við þær fremur fábrotnu aðstæð- ur, sem hér eru að þessu leyti. Gaumgæfileg athugun fór því fram, áður en lýst var yfir því af hálfu íslenzkra stjórnarvalda, að þau væru reiðubúin til að láta fundinn fara fram í Reykjavík. M. a. komu til landsins s.l. haust skrifstofustjóri NATO, Coleridge lávarður, sem gegnt hefur því ábyrgðarmikla starfi síðan á dög- um Ismays, fyrsta framkvæmda- stjóra bandalagsins, og með hon- um Edward Luff, sem verið hefur aðalskipuleggjandi nokkurra síð- ustu ráðherrafunda af bandalags- ins hálfu. Þegar þeir höfðu kynnt sér aðstæður og komizt að þeirri niðurstöðu, að hægt væri að halda fundinn hér, tók ríkisstjórnin end- anlega ákvörðun sína um málið. Á ráðherrafundinum í Bruxelles í desember s.l. bauð Emil Jónsson, utanríkisráðherra, svo ráðinu formlega að halda vorfundinn að þessu sinni í Reykjavík, nyrztu höfuðborg bandalagsins. FYRIRKOMULAG FUNDARINS. Ekki er hægt að segja að önnur húsakynni kæmu til greina fyrir fundarhaldið en Háskóli íslands, þótt fleiri staðir í borginni væru að sjálfsögðu hugleiddir. Varfund- artíminn síðan beinlínis valinn með það fyrir augum, að sem minnst röskun yrði á starfsemi skólans. Fyrirkomulag fundarins verður annars í meginatriðum sem hér segir: Setningarfundur að morgni mánudagsins 24. júní fer fram í Háskólabíói. Þar er skv. venju ráðgert að fluttar verði þrjár ræð- ur, þ. e. af forsætisráðherra ís- lands, dr. Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra NATO, dr. Manlio Brosio, og forseta ráðsins. Ekki er enn, þegar þetta er skrif- að, vitað með fullri vissu, hver gegna muni þeirri stöðu, þegar fundurinn kemur saman. Utan- ríkisráðherrarnir skiptast á um að sitja í forsæti ráðsins eitt ár í senn og er fylgt stafrófsröð land- anna. Þetta árið fellur þessi virð- ingarstaða í hlut utanríkisráð- herra Frakka — og mátti því fyr- ir skömmu ætla, að maðurinn yrði Maurice Couve de Murville. Hann hefur sem kunnugt er setið manna fastastur á utanríkisráðherrastóli í u. þ. b. áratug. Nú hefur hann hins vegar snúið sér að öðru sviði, sem hann líka gjörþekkir — og tekið að sér fjármálastjórn í lýð- veldi de Gaulles. í svipinn er því Michel Debré utanríkisráðherra. Þar sem þingkosningar eiga að fara fram í Frakklandi laugardag- inn 23. júní, daginn fyrir ráð- herrafundinn, verður málið enn að teljast nokkuð á huldu — og þar með óvíst, hver þriðji ræðu- maðurinn verður við hina hátíð- legu setningu fundarins. — Við- staddir setninguna verða 900— 1000 manns, þ. á m. margir ís- lenzkir gestir. Ráðsfundirnir eða hinir lokuðu vinnufundir ráðsins, sem hefjast strax að setningarfundinum lokn- um, verða haldnir í hátíðasal H.í. Munu allar sendinefndirnar fá eitthvert athvarf í háskólabygg- ingunni, þótt það verði raunar af skornum skammti hjá sumum. Þau ríkjanna, sem hafa sendiráð í Reykjavík, munu að sjálfsögðu einnig hagnýta sér þá skrifstofu- aðstöðu, sem þar er. Öryggis- varzla verður framkvæmd eftir þeim venjum, sem tíðkast í sam- bandi við fundi bandalagsins. Fá ekki aðrir aðgang að húsakynnum

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.