Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Qupperneq 65

Frjáls verslun - 01.04.1968, Qupperneq 65
eins frá aðildarríkjunum heldur líka frá t. d. hinni kunnu sovézku fréttastofu Tass — og raunar víðs- vegar að af hnettinum. Verður leitast við að skapa eins góða að- stöðu fyrir fréttamennina og unnt er, m. a. til sjónvarpsmyndatöku, útvarpsviðtala og hinna venjulegu starfa blaðamanna. Mjög mikil- vægur þáttur er einnig hvers kyns fjarskiptaþjónusta og hefur því verið lögð sérstök áherzla á að búa eins vel í haginn að því leyti og frekast er kostur hér. Auk þeirrar umfangsmiklu þjónustu, sem póstur og sími munu láta í té, hafa m. a. verið uppi ráða- gerðir um að hafa sérstaka flug- vél í förum með filmur og frétta- efni til meginlandsins meðan fundurinn stendur. MIKILSVERÐ MAL A DAG- SKRA. Ekki er unnt að víkja á þessum vettvangi beint að þeim málum, sem ráðherrarnir kunna að fjalla um, þar sem dagskrá er ekki birt opinberlega. Þó er á almannavit- orði, að framtíðarhlutverk banda- lagsins hefur að undanförnu verið ofarlega á baugi, bæði innan NATO og í einstökum aðildarríkj- um þess. Á ráðherrafundinum í Bruxelles í desember s.l. var ein- róma samþykkt og síðan birt hin svonefnda Harmel-áætlun eða Harmel-skýrsla um stefnu banda- lagsins og verkefni á komandi ár- um. Voru með henni mörkuð viss tímamót í sögu bandalagsins. Um leið var fastafulltrúunum hjá bandalaginu falið að hafa for- göngu um frekari athugun ein- stakra mála og leggja skýrslur um niðurstöður sínar fyrir ráð- herrafund síðar. M. a. er vitað, að hvers kyns leiðir til þess að draga úr herbúnaði — eftir því sem slíkt kann að reynast fært, án þess að jafnvægi raskist — eru þátttökuríkjunumofarlega í huga. Aukinn herstyrkur Sovétveldisins á Miðjarðarhafi hefur á hinn bóg- inn orðið mörgum áhyggjuefni, ekki sízt vegna hins ótrygga ástands á þeim slóðum. Margir hafa getið sér þess til, að slíkt kynni að kalla á einhverjar mót- ráðstafanir af bandalagsins hálfu til frekari tryggingar á öryggi þátttökuríkjanna. Engum kæmi því á óvart, þó að þessi mál yrðu meðal þeirra, sem fjallað verður um á fundinum. — Annars er sér- stök ástæða til að vekja athygli lesenda á Harmel-skýrslunni, sem áður var nefnd, því að hún gefur athyglisvert yfirlit yfir málefni bandalagsins og sameiginlega af- stöðu þátttökuríkjanna til þeirra. MERKUR FUNDUR. Óhætt mun að fullyrða, að ekki hafi í annan tíma lagt leið sína hingað til lands í einu fleiri áhrifamiklir stjórnmálaleiðtogar og embættismenn á sviði utan- ríkis- og alþjóðamála, en vænta má til ráðherrafundarins nú. í föruneytum ráðherranna verða margir nánustu samstarfsmenn þeirra úr ráðuneytunum heima fyrir — og má því með vissum hætti segja, að utanríkisráðuneyti ríkjanna 14 flytjist hingað til Reykjavíkur þá daga, sem ráð- herrarnir dveljast hér. Öll mál, sem ákvörðunar þeirra krefjast, hvar í heiminum, sem þau kunna að eiga upptök sín, verður þessa daga að senda þeim til afgreiðslu hingað. Munu því án efa margra augu beinast norður á bóg'inn meðan fundurinn stendur — ekki síður en ætla má að fundurinn sjálfur og margir í hópi þeirra 350—400 manna, sem hann sækja, muni draga að sér athygli fólks hér á landi. Þeir koma fil íslands . . Framh a.f bls. 60. Árin 1947—''50 gegndi hann síðan embætti aðstoðarutanrikisráðherra og í framhaldi af því utanríkisráð- herraembætti fram til 1952, er hann var skipaður fastafulltrúi Grikkja í Atlantshafsráðinu. Hann sagði síðan skilið við utanríkisþjónustuna 1953 og bauð sig fram til þings. Gegndi hann viðskiptamálaráðherraembætti frá því í nóv. 1961 til júni ’63, en varð forsætisráðherra hinn 18. júní 1963. 1 ngv. 1963 varð Pipinelis kjör- inn þingamður Aþenuborgar. Hann varð ráðherra um tæpl. 3ja vikna skeið í apríl 1967 og síðan utanríkis- ráðherra s.l. haust. PIERRE GREGOIRE heitir hinn sextugi utanríkisráðherra stórher- togadæmisins Luxemborgar, þess bandalagsríkisins, sem kemur næst Islandi að fólksfjölda, með um 320 þús. ibúa. Hann gerðist starfsmaður hins opinbera 1929, að lokinni skóla- göngu. Árin 1933—’59 gegndi hann m. a. ristjórnarstörfum, auk þess sem eftir hann liggja nokkrar bækur. Þingferill hans hófst á miðju þessu tímabili, árið 1946, en árin 1951—’59 var hann framkvæmdastjóri kristi- legs flokks sósialista. Gregoire varð innanríkis- og samgöngumálaráð- herra árið 1959 og gegndi því em- bætti, þar til hann varð kennslumála- ráðherra 1964. Hann tók síðan við utanríkisráðherraembætti 1967 og fer jafnframt með hermál og menningar- mál. Virðist því ríkja hjá Luxem- borgurum það fyrirkomulag og hér, að því er starfssvið ráðherra snertir, þ. e. sami ráðherra fer með allmarga málaflokka og suma all- óskylda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.