Frjáls verslun - 01.05.1968, Side 11
FRJÁLS VERZLUN
11
MEIRA ATVINNULEYSI I
BRETLANDI EN NOKKRU
SINNI FYRR
Atvinnuleysi í Bretlandi verður
æ tilfinnanlegra. Þannig var fjöldi
atvinnulausra meiri í júní s.l. en
nokkru sinni síðan 1940, og fyrstu
kannanir á þessu vandamáli í júlí
sýna frekari aukningu atvinnu-
leysis. Var tala atvinnulausra fyr-
ir skemmstu komin upp í 581.000
manns, sem er um 2.5% af öllu
samanlögðu vinnuafli í Bretlandi.
MERKI UM BÆTTA
FRAMLEIÐNI.
Þessi mikli fjöldi atvinnulausra
í Bretlandi hefur að einu leyti á
sér bjarta hlið fyrir stjórn Wil-
sons, því að samtímis þessu aukna
atvinnuleysi hefur framleiðslan
vaxið verulega. Frá því í júlí 1966
til júlí 1967 minnkaði framleiðsl-
an lítils háttar og þá varð tala at-
vinnulausra um 400.000. Frá því
í miðjum júlímánuði 1967 til sama
tíma á þessu ári hefur framleiðsl-
an í Bretlandi vaxið um 4%%,
en á sama tíma hefur fjöldi at-
vinnulausra vaxið um nær 200.-
000 manns. Þetta sýnir, að fram-
leiðnin í brezkum iðnaði hefur
aukizt verulega.
Hvorki í ríkisstjórninni né í
brezku atvinnulífi eru menn þó
sérstaklega hrifnir af þróuninni á
vinnumarkaðinum. Að vísu heldur
ríkisstjórnin því fram opinber-
lega, að ástandið í atvinnumálum
muni verða talsvert betra í haust.
En í atvinnulífinu hafa menn
miklar áhyggjur af því, að hið
gagnstæða verði raunin. Er þetta
rökstutt með því, að hin mikla
framleiðsla í vor standi í sam-
bandi við þá miklu neyzluaukn-
ingu — eins konar hamsturs-
bylgju, — sem ríkt hefur í Bret-
landi, síðan gengisfellingin varð
þar s.l. haust. Nú, þegar þessi
neyzluaukning fer senn að hætta,
dragi úr framleiðslunni, sem muni
enn auka við tölu atvinnulausra.
MINNA ATVINNULEYSI MEÐAL
KVENNA.
Á það er bent á meðal brezkra
fjármálamanna, að fjórir megin-
þættir leggist á eitt með að svipta
hulunni af því, hversu alvarlegt
ástandið er í rauninni.
í fyrsta lagi hefur atvinnulífið
haft mikið gagn af neyzluaukn-
ingunni, sem getið var hér að
framan, og sem ekki er búizt við
að muni halda áfram.
í öðru lagi er árstíminn frá því
í febrúar — er mesta atvinnuleys-
isaukningin hófst — sá tími, sem
heppilegastur á að vera fyrir at-
vinnulífið. Sveiflur vegna árstíða
munu nú taka að hafa þau áhrif,
að fjöldi atvinnulausra vex.
f þriðja lagi hefur dregið mjög
úr atvinnuleysi á meðal kvenna.
í fjórða lagi hefur jafnaðar-
lengd atvinnuleysistímabilanna
lengzt mikið. Þannig reyndist í
júní 2/3 hlutar þeirra, sem at-
vinnulausir voru, hafa verið án
atvinnu í meira en 8 vikur sam-
fleytt.