Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 39
FRJALS VERZLUN
37
lögin „Hamar“ °g „Héðinn“,
Reykjavíkur Apótek, hjúkrunar-
konur Kleppsspítalans, Olíufélag-
ið, og „B.P.“ o. fl. Að vísu hefur
borið á óánægju hjá þessum aðil-
um, vegna rýi’nunar peninganna,
en allar þessar lífeyris- og dánar-
bótatryggingar eru teknar fyrir
síðari heimsstyrjöldina.
Seinast á árinu 1961 (pr. 31/12.
1961) kaupir svo Líftryggingar-
deildin allar sínar gömlu endur-
tryggingar hjá endurtryggjendum
sínum. Þessar tryggingar eru
teknar 1934—1947. Endurtrygg-
ingarupphæðin nam rúmlega 30
millj. króna. Ber deildin því alla
þessa upphæð í eigin áhættu síð-
an, enda hættulaust, vegna stærð-
ar iðgjaldavarasjóðsins, sem er
bak við þær.
Nú nýlega hefir Líftryggingar-
deildin tekið upp nýjar líftrygg-
ingar, svokallaðar „tímabundn-
ar“-líftryggingar, þar með taldar
„stórtryggingar“. Stórtryggingar
eru þannig upp byggðar, að trygg-
ingarupphæðin minnkar frá ári til
árs, eftir þar til settum reglum,
en iðgjaldið helst óbreytt. Stór-
trygging er því tilvalin fyrir bá,
sem skulda vegna húsbygginga og
lækkar tryggingarupphæðin um
leið og skuldir tryggða. Trygging-
ar þessar eru mjög ódýrar. Ef
tryggður deyr á tryggingartíman-
um, kemur tryggingarupphæðin
til útborgunar, en ekki ef hann
lifir út tryggingartímabilið, þá er
tryggingin úr gildi. Tryggingar
þessar er hægt að fá vísitölu-
tryggðar.
Þá hefir Líftryggingardeildin
nýverið tekið að sér hóplíftrygg-
ingar, sem eru í því fólgnar, að
hónar innan fyrirtækja, eða utan,
geta líftryggt sig. Þesssar trygg-
ingar eru einnig tímabundnar,
þannig að bætur eru ekki greidd-
ar nema tjón (dauðsfall) verði á
ti’yggingartímanum. Tryggingar
þessar eru endurtryggðar innan-
lands, gagnkvæmt.
Fyrir síðustu aldamót og allt
fram að seinni heimsstyrjöld
höfðu líftryggingar, kapital-trygg-
ingar, það er að segja líftrygging-
ar, sem útborgast áttu í iifenda
lífi, eða fyrr, við fráfall tryggða,
mikið gildi fyrir þá, sem hugðust
tryggja sér nokkra fjárupphæð til
elliáranna. Tryggingarupphæðir
námu þá frá 3 þús. og upp í 10
þús. krónur. Nú eru þessar upp-
hæðir næsta lítils virði, miðað við
fyrir stríð. Til dæmis hve slíkai
upphæðir voru mikils virði um
1937, sýnir eftirtalið dæmi: Vöru-
bílstjóri hafði tryggt sig árið
1936, fyrir rúmlega 4000 krónur.
Hann dó 1 eða 2 árum eftir að
hann tók trygginguna. Ekkja hans
fékk tryggingarupphæðina út-
borgaða og gat fest kaup á íbúð
fyrir sig og börnin.
LÍFTRYGGINGflR /935-1967
©----® HEILDMTRIFGmMt/f’/’f/ÆV FÖFUPSTÓLSTmS///G/í