Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Page 9

Frjáls verslun - 01.10.1969, Page 9
Guðmundur: Börn hafa mjög gaman af sjónvarpsauglýsing- um, þau læra lögin og text- ana ... FV: Sjónvarpið nær stærri markaði, því að það hefur á- hrif á börnin, sem ekki eru orðin læs, þau hvetja foreldra sína að kaupa eimitt þá vöru, Árni: Þýðir ekki að leggja net í dauðan sjó ... sem er verið að auglýsa í sjón- varpinu. .. Olafur: Sjónvarpsauglýsing byrjar ekki að hafa veruleg á- hrif, fyrr en búið er að sýna hana nokkrum sinnum, þ. e. a. s. nafn vörunnar er dálítinn tíma að festast í huga fólks- ins, en ég tel sjálfsagt að fylgja sjónvarpsauglýsingunni eftir með auglýsingum í dagblöð- um. Árni: Það þýðir ekkert að leggja net í dauðan sjó, og það sama gildir með auglýsing- ar. Eg er sammála Guðmundi, þegar hann talaði um fyrirtæk- in, sem auglýsa í alls konar bæklingum og tímaritum, er engin teljandi áhrif hafa eða útbreiðslu. Ef maður birtir á- berandi auglýsingu í Morgun- blaðinu, þá linnir ekki látum þann sama dag — hin dagblöð- in vilja líka fá þessa auglýs- ingu og síðan tímaritin. Hvar stæði maðurinn, ef hann gæfi jáyrði við öllum beiðnunum? Hann þyrfti að borga tugi þús- unda .... Kristín: Hann getur fyrirbyggt þetta með því að skipuleggja sinar auglýsingar í samráði við auglýsingastofu. . . FV: Við ættum nú að koma inn Sigurjón: Mörg fyrirtæki hikandi við að notfæra sér auglýsinga- þjónustu. á hlutverk auglýsingastofunn- ar. Auglýsingastofur eru til- tölulega nýr vettvangur, og nauðsynlegur tengiliður að á- liti þeirra, sem eitthvað vita um auglýsingar og mismunandi áhrif þeirra. Er það ekki rétt, og nú er rekstur helztu auglýs- ingastofanna orðinn traustur og þær njóta vaxandi við- skipta? Kristín: Það færist smám sam- an í það horf, að menn læri að meta okkar þjónustu. Mér finnst þetta lagast með hverju árinu, og það eru allmörg fyr- irtæki, sem notfæra sér þjón- ustu okkar til hins ýtrasta. Þau fyrirtæki hafa um leið mest gagn af okkar þjónustu. Sumir láta einungis teikna aug- lýsingar og sjá sjálfir um hitt. Einnig skiptir miklu máli, hvernig auglýsingin er upp- byggð. Ég get tekið dæmi um stórt innlent matvælafyrirtæki. í fyrra gerði ég auglýsingar fyrir sígilda matvælategund og mér er sagt, að salan á ár- inu hafi aukizt um 11%, og er þá miðað við magn. Á sama tíma hækkaði varan að meðal- tali um 50-60%. Með þessum auglýsingum var gjörbreytt um aðferð. Við sögðum ekki: Borðið meira af okkar ágætu Jóhann: Áberandi að tímarit eru ekki notuð rétt... vöru, varan er góð o. s. frv. heldur bentum við húsmæðr- um á að nota hann á fjöl- breyttari hátt með því að birta uppskriftir bæði í auglýsingum og pésum. Auk þess hefur fyr- irtækið lagt áherzlu á að kynna notkun vörunnar með sýnikennslu og öðru. FV: Áttu ekki við, að það hafi hitt í mark að kenna húsmæðr- um að gera eitthvað nýtt úr vörunni? Kristín: Það er anzi mikill á- hugi hjá húsmæðrum að reyna eitthvað nýtt. Árni: Fyrirtæki, sem hafði eytt fleiri hundruðum þúsunda í auglýsingar án teljandi árang- urs, réði til sín lærðan auglýs- ingateiknara. Hann byrjaði á því að færa auglýsingakostnað- inn niður um 9/10 hluta, en salan jókst hjá fyrirtækinu um nær því helming. Þetta lá fyrst og fremst í betri skipulagningu 7 L

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.