Frjáls verslun - 01.10.1969, Qupperneq 15
endum hefði viðskipti við aug-
lýsingastofur, myndi það
stuðla að fækkun starfsfólks
hjá blöðunum. Blöðin myndu
spara mikinn tíma, bæði prent-
ara og prófarkalesara, spara
umsjón með prentmótum, og
þetta myndi einnig þýða aukn-
ingu auglýsinga. Auglýsinga-
stofan er ábyrg fyrir greiðsl-
um og setur tryggingu fyrir
greiðslum, hvort sem viðskipta-
vinurinn greiðir eða ekki, og
við skulum ekki gleyma því,
að með auknu magni af erlend-
um framleiðsluvörum hérlend-
is, myndi löggilt auglýsinga-
þjónusta stuðla að því að auka
erlent fjármagn, sem varið
yrði í auglýsingar hér.
FV: Teljið þið rétt að leyfa vín-
-auglýsingar?
Sigurjón: Mér finnst það sjálf-
sagt.
Árni: Lengi vel var bannað að
auglýsa tóbak í blöðunum, og
ég var við og við að spyrjast
fyrir um þetta í viðkomandi
ráðuneyti, en fékk aldrei nein
skýr svör. Svo leiddist mér
þófið og birti eina auglýsingu
upp á mitt eindæmi, og eftir
það kom skriðan. Síðan hefur
tóbak verið auglýst í blöðum
og tímaritum.
Guðmundur: Mig langar að
skýra mína afstöðu til auglýs-
ingastofa. Það er margt, sem
mælir með því að verzla við
auglýsingastofur, en það, sem
þarf að gerast, er, að auglýs-
ingastofur séu reknar eins og
ferðaskrifstofur — að það kosti
viðskiptavininn ekkert að
verzla við auglýsingastofuna.
Kristín: Dreifingin kosti hann
ekkert. ..
^DILKAKJÖT
^HENTAKfVEL ÍSFEESTA ^KÉTTI
‘TSAMBASTEIR
1 dilkalæri
hveili
krydd
70—80 g smjörlíki
hunang
Þurrkið af kjölinu með rökum klút.
Saltið og kryddið ellir bragði; smyrjið
lærið með hunanginu og stráið hveitinu
ylir. Leggið lærið ásamt smjörlikinu i
ofnskúllu og steikið i 20—25 min. við
180 C fyrir hverl kg af kjöti.
FYLETUIi BOQURj
1 msk hveiti
1 tsk söxuð
steinselja
Vt tsk kryddjurtir
1 dilkabógur
salt, pipar
60 g smjörliki
250 g hakkað kjöt
1 egg
Hakkið kryddað meö salii og pipar og
létt steikt. Egginu hveitinu og steinselj-
unni hrært vel saman við. Salti og pipar
nuddað létt utan á og innan í útbein-
aðan bóginn og hann siðan fylltur með
kjötdeiginu og saumaður vandlega sam-
an. Steikt'i ofni við 180 C í 30—40
min. fyrir hvert hálft kg af kjöti.
Þráðurinn tekinn úr, áður en kjötið er
borið fram.
ÞER GETIÐ TREYST GÆÐUM DILKAKJÖTSINS
ÞAÐ ER MEYRT OG BRAGÐGOTT
DILKAKJÖT ER ÓDÝRASTA KJÖTIÐ
AFURDASALA ra|É
Guðmundur: Það á ekki að
kosta hann neitt, ekki klissjur,
ekkert. Auglýsingastofurnar
13