Frjáls verslun - 01.10.1969, Qupperneq 16
AUGLÝSINGA
SPJALL
eiga að fá allt sitt í gegnum
afslátt hjá blöðunum, afslátt-
urinn mætti hækka til blað-
anna.
Ólafur: Enn sem komið er hef-
ur þetta ekki verið hægt í Sví-
þjóð, og er þar þó miklu stærri
markaður en hér.
FV: Það er auðvitað mikill
munur á því, hvort menn fá
25% afslátt af heilsíðu auglýs-
ingu í Morgunblaðinu eða 15%
afslátt af heilsíðu í BT. 15%
afsláttur af heilsíðu í stórblaði
eru miklir peningar en 15% af-
sláttur Morgunblaðsins gerir
ekki stórt í rekstri auglýsinga-
stofu. Auðvitað væri skemmti-
legast fyrir auglýsingastofu að
geta sagt:, ,Við erum með þitt
auglýsingafé til ráðstöfunar.
Þú færð engan reikning fyrir
teikningum, klissjum og þess
háttar — við tökum okkar ó-
makslaun í afsiættinum.
Árni: Nei, nei, auglýsingastof-
an skipuleggur fyrir viðskipta-
vininn og reiknar allan kostn-
að eins og kaupmaðurinn ger-
ir og segir: „Þetta kostar var-
an“.
Kristín: Þetta er það, sem við
gerum, en við sundurliðum
kostnaðinn . ..
Árni: Það er algjör óþarfi
Guðmundur selur sín föt á
5.800 krónur, og við fáum eng-
an afslátt.
Kristín: Það er heiðarlegra
gagnvart viðskiptavininum að
gera þetta svona . . .
Árni: Við fáum ekki sundur-
liðaðan reikning frá fatasalan-
um — hvað fer í efni, sauma-
skap, dreifingar- og sölukostn-
að. Af hverju þarf þá auglýs-
ingastofan að gera það? Kristín
segir, að það sé heiðarlegra, og
það samþykki ég.
Kristín: Á okkar litla markaði
hlýtur að þurfa að borga kostn-
aðinn við að búa til auglýsing-
una. Reyndar getur auglýs-
ingaskrifstofa reynt að hafa
þann kostnað í lágmarki, mið-
að við að sjá um dreifinguna
hjá viðkomandi fyrirtæki.
Kostnaðurinn gagnvart við-
skiptavininum reiknast þann-
ig: Viðskiptavinurinn greiðir
kostnaðinn við gerð auglýsing-
arinnar, en auglýsingastofan
leggur fram alla birtingar-
reikninga með hæsta möguleg-
um afslætti, (sem er í flestum
tilfellum talsvert hærri en við-
skiptavinurinn fengi, ef hann
stæði sjálfur í þessu), síðan
leggur auglýsingastofan 15% á
nettóupphæð birtingarreikn-
inganna. Þannig fær viðskipta-
vinurinn auglýsingar í gegnum
auglýsingastofuna t. d. í Morg-
unblaðinu með tæpum 20% af-
slætti. Athugum kostnaðinn
við gerð auglýsingarinnar.
Teiknarinn getur gert auglýs-
inguna þannig úr garði, að hún
taki minna pláss en sett aug-
lýsing og sé þ. a. 1. ódýrari í
birtingu. Teiknuð auglýsing er
áhrifameiri og „drukknar“ síð-
ur í auglýsingaflóði blaðanna.
Ef á heildina er litið, sé ég ekki
betur en það borgi sig að
skipta við auglýsingastofu.
Auglýsingarnar verða betri og
aglýsingaféð nýtist betur.
FV: Það sýnist eðlilegt, að við-
skiptavinur, sem leggur allt
sitt í hendurnar á auglýsinga-
miðlara, njóti betri kjara en
sá, sem kemur einu sinni á ári
inn til auglýsingastofu, alveg
á sömu forsendum og auglýs-
ingastofurnar fá mesta afslátt
hjá Morgunblaðinu vegna hag-
kvæmra viðskipta.
Kristín: Ef við athugum svo-
lítið, hvert okkar verksvið er,
þá vil ég benda á, að við þurf-
um að byrja á því að gefa fyr-
irtækinu „andlit“. Þegar mað-
ur tekur fyrirtæki fyrst að sér,
reynir maður að koma „and-
litinu“ í gott lag og byggja aug-
lýsingarnar þannig upp, að fyr-
irtækið skeri sig út og ruglist
ekki saman við önnur fyrir-
tæki, sem það á í samkeppni
við. Það er hagkvæmara fyrir
auglýsingastofuna að geta unn-
ið sitt verk frá rótum, og það
er líka tekið tillit til þess í
verðlagningu.
FV: Líklegast er einn mesti
misskilningurinn í samskiptum
kaupsýslumanna við auglýs-
ingastofur, að líta ekki á þær
eins og einn hlekk í keðjunni,
líta frekar á þær sem illa
nauðsyn, en ekki sjálfsagða.
Auglýsingamaðurinn á að vera
trúnaðarmaður fyrirtækisins.
Árni: Auglýsingamaðurinn get-
ur ekkert gert, nema hann fái
að skyggnast inn í innstu
leyndarmál fyrirtækisins.
Kristín: Ég vil benda hér á, að
ef annað fyrirtæki í sömu grein
og t. d. Askur, bæði mig um
að gera fyrir sig auglýsingar,
þá myndi ég alls ekki treysta
mér til þess og vil ekki vinna
fyrir fleiri en einn aðilja í
sömu grein.
Ólafur: Það er meginatriði hjá
auglýsingastofum, sem vilja
veita fullkomna auglýsinga-
þjónustu, að hafa ekki fleiri
en einn viðskiptavin í hverri
grein.
Kristín: Þá verða hinir sömu
14