Frjáls verslun - 01.10.1969, Qupperneq 17
viðskiptavinir að leyfa manni
að gera eitthvað.
Ólafur: í morgun lentum við
einmitt í miklum vanda. Það
kom til okkar maður og vildi
gera við okkur samninga, en
við höfðum viðskiptavin í sömu
grein og urðum að segja: „Því
miður, við höfum viðskiptavin
í sömu grein, hann er að vísu
ekki meðal okkar stærstu við-
skiptavina, en við viljum ekki
sleppa honum.“
Guðmundur: Við höfum unnið
þannig, að við reynum að gera
okkur grein fyrir, hvað fata-
markaðurinn er stór, og ég
veit, hvað við höfum prósent-
vís af honum. Við ætlum okk-
ur að ná stærri hluta af þess-
um markaði, og þess vegna eru
auglýsingar mjög mikilvægar
í okkar augum, einmitt af því
að við ætlum að ná hærri sölu-
prósentu í framtíðinni.
Kristín: Er ekki hætta á, að
Karnabær geti haldið ungling-
unum áfram hjá sér, fyrst þið
leggið ekki áherzlu á unglinga-
fatnað?
Guðmundur: Nei ,unglingarnir
koma til okkar, þegar þeir eru
komnir af ákveðnu skeiði, og
koma þá með nýjar hugmynd-
ir. Þeir vilja heldur ekki hitt.
Við verðum því að koma til
móts við þá með ný snið og ný
efni. Annars er þetta allt á
byrjunarstigi, þar sem þessi
„unglingaalda“ er ekki svo
gömul í hettunni.
FV: Ég vil beina þeirri spurn-
ingu til þín, Guðmundur, hvort
þér finnist ekki hvimleiður
þessi vælutónn í forráðamönn-
um íslenzks iðnaðar. Af hverju
getur íslenzkur þvottaefnis-
framleiðandi ekki auglýst sitt
þvottaefni í sömu hlutföllum
og þvottaefnið Dixan er auglýst
hvers vegna
PARKET
. *
Meðal annars af eftirtöldum óstæðum: 1) Verðið er
hagstætt 2) Áferðin er falleg 3) Þrif afar auðveld
4) Fer vel með fætur.
Parket mó negla á grind, líma eða „leggja fljótandi"
ó pappa.
Höfum fyrirliggjandi parket úr beyki,eik
(ftEGILL ARNASON
SLIPPFÉLAGSHÚSINU SÍMI 14310
VÖRUAFGREIÐSLA: SKEIFAN 3 SÍMI38870
15