Frjáls verslun - 01.10.1969, Qupperneq 23
samkeppni á ýmsum sviðum
hefur verið að ræða. Stjórnand-
inn oft stofnandi fyrirtækisins,
hefur hálf persónulegt sam-
band við flesta þá aðila, er máli
skipta í viðskiptum fyrirtækis-
ins. Slík fyrirtæki hafa orðið
mjög ráðandi á ýmsum svið-
um. Auglýsingar hafa ekki ver-
ið aðalatriðið í rekstri fyrir-
tækisins — og oft taldar óþarf-
ar, — heldur varðveizla þess-
ara persónulegu sambanda. Við
fráfall þessarar kynslóðar,
stækkun markaðs og vaxandi
auglýsingar hér, hefur mörgum
þessara fyrirtækja reynzt erf-
itt að halda velli og þau hafa
átt erfitt með að semja sig að
breyttum aðstæðum. Ný fyrir-
tæki, sem byggt hafa á breiðari
sölustarfsemi og tekið auglýs-
inguna að einhverju leyti í
sína þjónustu, hafa auðveld-
lega náð fótfestu á ýmsum
sviðum. Stór og gróin fyrir-
tæki eru til húsa í nýtízku eig-
in húsnæði, allir innanstokks-
munir bera svip O'kkar tíma, en
það sem út á við snýr, svo sem
merki, skrift, pappírar, auglýs-
ingar, umbúðir o. fl., er áratug-
um á eftir timanum.
Heilar og hálfar auglýsingasíð-
ur eru lagðar óunnar í hendur
setjurum blaðanna, notazt við
ýmsa óskilda aðfengna hluti,
hvern úr sinni áttinni. Texti oft
lélegur, engin áherzluorð (slóg-
anar) engin samræming í text-
um. Samt verja þessi fyrirtæki
hundruðum þúsunda í auglýs-
ingar á ári hverju. Ég fullyrði
að mörg þessara fyrirtækja
gætu náð miklu betri árangri
með auglýsingum sínum, þó
þau verðu mun lægri upphæð
með markvissari starfsemi.
Erlendis er það algengast, að
fyrirtæki geri sér ákveðna á-
ætlun um hve miklu af veltu
eða kostnaði við vöru eða
þjónustu sé varið til auglýs-
inga. Algengt er að talað sé um
2-7% af veltu, en það fer auð-
vitað eftir eðli þess, sem selt
er, og breytilegum samkeppnis-
þáttum. Oft geta þessar upp-
hæðir orðið miklu hærri, skipt
tugum prósenta t. d. hjá fyrir-
tækjum, sem selja dýrt ódýra
framleiðslu, en standa og falla
með auglýsingum s. s. vínfyr-
irtæki, sígarettu- og ilmvatns-
fyrirtæki og ýmis efnaiðnaðar-
fyrirtæki, eins og þvottaefnis-
verksmiðjur.
Næst á eftir þessu er gerð
áætlun í samráði við auglýs-
ingafyrirtæki um það, hvernig
þessum peningum skuli varið,
hvað auglýsa eigi, hvar og
hvernig. Um þetta er gerður
samningur, oft til eins árs í
senn við auglýsingafyrirtækið,
21