Frjáls verslun - 01.10.1969, Síða 28
þess. Þannig hefur maður rek-
izt á vígorð eins og þessi: ,,AHt
tréverk á einum stað“, „Allt á
barnið á sama stað“, „Allt í eld-
húsið á sama stað“ o. s. frv. í
þessu sambandi má þó benda á,
að þegar til lengdar lætur
borgar sig aldrei að stæla verzl-
unareinkenni annarra. Hag-
kvæmara er að öllu leyti að
velja sér sitt eigið vígorð og
halda svo fast við vernd þess
og vera vel á verði gegn allri
misnotkun annarra á því. Hafa
ber í huga, að vel auglýst víg-
orð er hluti af verðmæti og
„Goodwill“ viðkomandi verzl-
unar, sem getur haft ótrúlega
þýðingu fyrir viðgang hennar.
Eftir gildistöku hinna nýju
vörumerkjalaga er nú, eins og
áður segir, hægt að skrá víg-
orð sem vörumerki, og ættu
þeir, sem vígorð nota, að not-
færa sér þau réttindi.
I sambandi við val vígorða
og skráningu þeirra er þó at-
hugandi, að til þess að fá víg-
orð skráð, þarf það að uppfylla
sömu eða svipuð skilyrði og
önnur vörumerki, sem skráð
eru. Þannig er bannað að skrá
vörumerki, ef í því er heimild-
arlaust ríkistákn, opinber al-
þjóðamerki, merki íslenzkra
bæjar- eða sveitarfélaga, opin-
ber skoðunar- og gæðamerki
eða annað, sem til þess er fall-
ið að villzt verði á því og fram-
angreindum merkjum og tákn-
um. Ekki má vígorðið heldur
vera til þess fallið að villa um
fyrir mönnum, eða ef í því er
eitthvað, sem gefur tilefni til
að ætla, að átt sé við firma ann-
ars manns, eða ef villast má á
því og vörumerki eða vígorði,
sem skráð hefur verið 1iér á
landi samkvæmt eldri tilkynn-
ingu, eða hefur verið notað hér
á landi, þegar tilkynning um
skráninguna er afhent, og enn
er notað hér. Ymis önnur skil-
yrði eru sett fyrir skráningu
vörumerkja og vígorða, sem
ekki er ástæða til að rekja nán-
ar.
Tilgangur þessarar stuttu
greinar er eingöngu sá, að
vekja athygli kaupmanna og
annarra atvinnurekenda á þvi
nýmæli vörumerkjalaganna, að
skrá megi með einkarétti verzl-
unarvígorð. í því sambandi
þykir mér rétt að benda á eft-
irfarandi, sem af skráningunni
leiðir:
1. Þér fáið tryggingu fyrir
því, að vígorð yðar brjóti ekki
í bág við þegar skráð vöru-
merki eða vígorð annarra, þar
sem Vörumerkjaskrásetjari
rannsakar umsókn yðar um
skráningu með tilliti til þeirra
vörumerkja og vígorða, sem
þegar eru skráð, þannig að
ekki sé um of líkt vígorð eða
vörumerki að ræða.
2. Þér fáið nokkuð örugga
tryggingu fyrir því, að vígorð
yðar hafi almennt nægilegt sér-
kenni til þess að öðlast vernd
dómstóla, ef til kemur.
3. Þér fáið lögvernd fyrir
vígorð yðar þegar frá því, að
það er tilkynnt til skráningar,
enda þótt þér ekki takið það
strax í notkun, þar sem lögin
setja engin skilyrði fyrir notk-
un vörumerkja né heldur víg-
orða.
4. Með skráningunni fáið þér
tryggingu gegn því, að aðrir
noti vígorð yðar fyrir aðrar
vörur eða þjónustu, þar sem
hægt er að skrá vígorð fyrir
allar vörur og þjónustu.
5. Réttarfarslega standið þér
betur að vígi, þar á meðal með
tilliti til sönnunar fyrir rétti
yðar,
6. Þér öðlizt grundvöll fyrir
skráningu vígorðs yðar erlend-
is, þar sem mörg lönd gera
það að skilyrði fyrir skráningu
erlendra vörumerkja, að vöru-
merkið sé skráð í heimaland-
inu.
Af framanrituðu er Ijóst, að
það er góð regla fyrir þá, sem
vígorð nota í sambandi við at-
vinnurekstur sinn, að láta skrá
vígorð sín. I því sambandi er
þó rétt að benda á, að sam-
kvæmt ákvæðum hinna nýju
vörumerkjalaga, þá ber Vöru-
merkjaskráritara nú, að und-
angenginni rannsókn, sem hann
sjálfur framkvæmir, að birta
fyrirfram allar umsóknir um
26