Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 33
Til hægri eru dæmi um blaðaaug-
Jýsingar. Að neðan: Firmamerki
fyrir Kynningar hf. og Málm- og
skipasmíðasamband Islands.
Gísli B. Björnsson er fæddui'
23.6. 1938. Hann hóf nám við
Menntaskólann í Reykjavík,
en innritaðist síðan í Mynd-
listaskólann og lauk prófi það-
an 1959. Sama ár hélt hann tii
framhaldsnáms við listaháskól-
ann í Stuttgart. Árið 1961 setti
hann á stofn auglýsingastofu
Orðítíma
töluð-ísíma
ENNAR TRYGGINGAR U
r6>THOMlR«TI • •iMlirrM
og hefur rekið hana síðan und-
ir nafninu Auglýsingastofan
hf. Hann hefur kennt við aug-
lýsingadeild síðan 1961. Gísli
er þekktur af smekkvisi hvað
varðar útlit bóka og tímarita,
og má þar nefna Reykjavíkur-
bókina og Iceland Review.
®Bókarskreyting úr
Hófadyn og þekkt
merki eftir Halidór.
Halldór Pétursson er fæddur
26. september 1916. Hann varð
stúdent frá MR árið 1935 og
hélt síðan til náms við Kunst-
hándverkskolen í Kaupmanna-
höfn og lauk þaðan prófi 1938.
Eftir það starfaði Halldór sjálf-
stætt hér heima við ýmis konar
teiknivinnu fram til ársins
1945. í seinni tíð hefur Halldór
lítið fengizt við auglýsingagerð,
en í þess stað hefur hann gefið
málverkinu meira af tíma sín-
um. Hann gerir mikið af því að
skreyta bækur og teikna fyrir
blöð og tímarit, auk þess sem
hann gerir bókakápur. Margir
munu kannast við bókina Hófa-
dynur, sem kom út árið 1967,
en í þá bók lagði Halldór mikla
vinnu, og er það eitt merkasta
verk hans í seinni tíð. Þá er
gaman að geta þess, að hann er
höfundur Flugfélagsmerkisins
og merki Reykjavíkurborgar.
31