Frjáls verslun - 01.10.1969, Side 55
þeirra, er hafa með höndum
margs konar stjórnsýslu. Þar
sem tímaritið Iceland Review
hefur algjöra sérstöðu, hvað
snertir lesendahóp, prentun og
allan frágang, þá eru því gerð
sérstök skil á öðrum stað hér
í ritinu.
Á ári hverju eru gefnar út
margs konar handbækur, og
flytja margar þeirra auglýsing-
ar. í þeim hópi má nefna Við-
skiptaskrána, Directory of Ice-
land og íslenzk fyrirtæki, sem
kemur út í fyrsta sinn á þessu
ári.
Árið 1946 kom út á vegum
Helgafells Auglýsingabókin eft-
ir Símon Jóh. Ágústsson. Höf-
undur segir í formála, að drög
að bókinni hafi verið lögð vet-
urinn 1941, er hann flutti fyrir-
lestra i háskólanum um hag-
nýta sálarfræði. Nokkrir þeirra
fjölluðu um auglýsingar. Höf-
undur styðst við erlendar bæk-
ur og eitt íslenzkt rit, sem vert
er að nefna — Auglýsingar og
sálarfræði, — tveir fyrirlestrar
fluttir af dr. phil. Guðmundi
Finnbogasyni árið 1915.
í bíóum, Þjóðleikhúsinu og
víðar hafa verið settir upp aug-
lýsingaskápar. Slíkir auglýs-
ingaskápar geta tvímælalaust
gert mikið gagn, ef útstillingin
er athyglisverð. í Háskólabíói
er hægt að leigja skáp fyrir
allt árið og kostar leigan þá
25 þúsund, en ella 3 þúsund
krónur á mánuði.
Auglýsingar á leigubílum er
tiltölulega nýtt fyrirbrigði hér.
Það eru Lionsfélagar, sem hafa
beitt sér fyrir þessari fram-
kvæmd og gefa þeir Gunnar
Ásgeirsson og Guðmundur Guð-
mundsson (Linduumboðið) all-
ar nánari upplýsingar um verð
og skilmála. Það kostar um 20
þúsund krónur að leigja allan
bílaflotann í hálfan mánuð (allt
að 100 bílar). Spjöldin eru
silkiprentuð og er verð þeirra
mismunandi eftir því, hvemarg-
ir litir eru og eftir því, hversu
undirbúningsvinna er mikil.
Þekktasti útstillingagluggi
borgarinnar mun eflaust vera
gluggi Málarans í Bankastræti.
Hann er leigður fyrir fjögur
þúsund krónur á viku, og hefur
í ár verið mikil eftirspurn eftir
að fá hann leigðan. Það eru
einkum húsgagnaframleiðend-
ur, sem sækjast eftir plássinu,
en glugginn er það rúmur, að
hægt er að sýna þar heilu hús-
gagnasettin.
Vísir hefur um langan aldur
verið blað smáauglýsinganna.
Stafar það einkum af því, að
blaðið er fyrst og fremst lesið
á Reykjavíkursvæðinu og Suð-
urnesjum. Það hefur hlutfalls-
lega mjög mikla útbreiðslu á
þessu svæði, en litla utan þess,
nema á Akureyri.
Smáauglýsingunum hefur
fjölgað verulega síðustu mán-
uði, m. a. vegna þess að blaðið
hefur tekið upp þá þjónustu
að sækja auglýsingarnar heim
til fólks. Þá hafa verið teknir
upp ýmsir auglýsingaflokkar í
smáauglýsingum og hlotið fast-
an sess, svo sem dálkarnir „hús-
gögn“, „heimilistæki“ og „fast-
eignir“, en einna vinsælust
hafa „bílaviðskipti“ orðið.
Þá hefur einnig orðið miki)
aukning í venjulegum auglýs-
ingum á þessu ári, eins og þeir,
sem fylgjast með auglýsinga-
málum, hafa tekið eftir. Virð-
ast auglýsendur nokkuð fljótir
að átta sig á breytingum þeim,
sem verða á útbreiðslu blaða,
því að þessi aukning kemur í
kjölfar stóraukinnar kaupenda-
tölu. Þá hefur blaðið fengið
á sig eins konar „miðbæjar-
svip“ og er keypt í stórum stíl
af fólki, sem er á ferðinni í
bænum, húsmæðrum í verzlun-
arerindum og starfsfólki fyrir
tækja, sem þar eru.
Það má segja, að hagkvæmt
sé fyrir auglýsendur að aug-
lýsa í Vísi. Þeir, sem auglýsa
fyrir markað um allt landið,
snúa sér oftast annað. En þeir.
sem auglýsa fyrst og fremst
fyrir markaðinn á Reykjavík-
ursvæðinu og á Suðurnesjum,
auglýsa talsvert í Vísi. Auglýs-
ingarnar ná þá til langflestra
þeirra, sem búa á þessu svæði.
Það er einmitt þessi samþjöpp-
un lesenda Vísis á takmörkuðu
svæði, sem skapar sérstöðu
blaðsins sem auglýsingablaðs.
53