Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Side 64

Frjáls verslun - 01.10.1969, Side 64
mörgum litum og þykktum og er sagað niður og mótað í bíl- rúður, rúður í flugvélar og skip, sem sagt notað alls stað- ar, þar sem gler er of veikt. Þetta plast er einnig notað und- ir skrifborðsstóla, í gegnum- lýsingarborð í frystihúsum. Geislaplast hefur gert margs konar skilti, og hér fylgir mynd af skilti, sem fyrirtækið gerði fyrir Teddy verziunina við Laugaveginn — það kost- aði ca. 20 þúsirnd krónur. Geislaplast hefur einnig gert skiltið fyrir framan Bruna- bótafélagshúsið, innarlega við Laugaveginn. Þeir, sem þurfa að fá prent- aða sjálflímandi merkimiða, geta m. a. snúið sér til Karls M. Karlssonar í Kópavogi. Sem dæmi um vinnubrögðin er nær- tækast að nefna miða þá, sem skreyta íslenzka brennivínið, en þeir eru einmitt prentaðir hjá Karli. Einnig hefur hann prentað mikið fyrir Osta- og smjörsöluna, Síld og fisk og Kísiliðjuna svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið hefur starf- að frá 1961 og vinna hjá Karli 4-5 manns. Á myndinni sjáið þið vél þá, sem prentar á sjálf- límandi efni og stanzar um leið. Gunnar Lárusson hjá Fönix sér um auglýsingar á rusla- kössunum svonefndu. Hann sagði í viðtali við F.V., að ým- ist væri hægt að panta 50 stæði eða 100 (það er heildartalan) og kostaði birtingin 15 krónur á dag, miðað við minnst viku- tíma í senn. Hann sagði, að nýtingin hefði verið góð undan- farin þrjú ár, en í ár væri hún léleg. Gunnar sagðist yfirleitt vísa viðskiptavinum sínum á Fjölprent, sem prentaði auglýs- ingaspjöldin á mjög hagkvæmu verði, frá 25—40 krónur per stk. eftir því, hve litrík þau væru. Bikarbox að Vatnsstíg 3 er fyrirtæki, sem hefur sérhæft sig í gerð boxa undir ís, duft, sultur, júgursmyrsl, svo eitt- hvað sé nefnt. Upprunalega var framleiðslan bundin við box, en síðar bættist við kassagerð og prentun. Fyrirtækið vinnur ekkert á lager heldur eingöngu eftir pöntunum, og eru pant- anir yfirleitt smáar. Hjá fyrir- tækinu vinna að jafnaði 8—10 manns. Eigendur eru Sigurberg- ur Árnason og Ólafur Guðjóns- son. 62

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.