Frjáls verslun - 01.11.1971, Qupperneq 7
SAMGOIXIGUR
Miklar afborganir af ísl. flugvélum
Það mun láta nærri, að Loft-
leiðir hf. og Flugfélag íslands
hf., skuldi um tvo milljarða
króna í farkostum sínum. FV
fékk þær upplýsingar hjá
Sveini Sæmundssyni, biaðafull-
trúa Flugfélagsins, að skuldir
FÍ vegna flugvéla hefðu verið
462 milljónir þann 15. október
sl. Af þessari upphæð þarf að
greiða 170 milljónir á því sem
eftir er af þessu ári og á næsta
ári. Engar upplýsingar fengust
um þetta hjá Loftleiðum, en
með því að grafa upp tilkynn-
ingar frá ýmsum tækifærum
virtist svo, sem Loftleiðir
skuldi í flugvélum 1.300-1.500
milljónir. Afborganir hljóta að
vera stórar upphæðir, ef þetta
reynist nálægt sanni.
Það gefur auga leið, að mikl-
ir fjármunir eru í húfi, þegar
slíkar skuldbindingar eru ann-
ars vegar, og ekki sama hvern-
ig að málum er staðið. Þess
vegna m. a. hljóta menn að
binda vonir við að viðræður
forystumanna flugfélaganna
reynist af alvarlegu tagi, og að
ekki komi til opinberrar íhlut-
unar í þennan atvinnurekstur,
sem skiptir alla þjóðina höf-
uðmáli.
Iftnaður
Lokaskýrsla um sjóefna-
vinnslu væntanleg í marz
Jákvæðar niðurstöður enn sem komið er
Lokaskýrsla um niðurstöður
af rannsóknum vegna fyrirhug-
aðrar sjóefnavinnslu á Reykja-
nesi mun væntanlega verða af-
hent ríkisstjórninni og Rann-
sóknarráði ríkisins í marz n.k.
Höfundar skýrslunnar eru Bald-
ur Líndal efnaverkfræðingur
og dr. Vilhjálmur Lúðvíksson.
Skýrslan mun verða einkar já-
kvæð, að því er snertir þau at-
riði, sem þegar hafa verið tek-
in til athugunar, varðandi
möguleikana á sjóefnavinnslu.
Er þá fyrst og fremst um að
ræða ýmis tæknileg atriði, en
hin hagræna hlið málsins þarfn-
ast sérstakrar athugunar. Kem-
ur til mála að stofnað verði
sérstakt undirbúningsfélag til
að vinna að rekstrarlegum at-
hugunum, en síðan er hægt að
taka ákvörðun um, hvort stofna
á sjóefnaverksmiðju.
Skýrslan fjallar m. a. um
rannsóknir Baldurs Líndal,
markaðsrannsókn svissnesks
fyrirtækis, seltumælingar Haf-
rannsóknastofnunarinnar, at-
hugun á hæfni saltsins í salt-
fisksöltun, sem framkvæmd var
í Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins. Þá er gefið yfirlit yf-
ir niðurstöður Orkustofnunar
vegna rannsókna á jarðhita-
svæðinu á Reykjanesi með til-
liti til jarðsjávarins þar. Þá má
nefna upplýsingar um athugan-
ir á flutningamálum, staðsetn-
ingu o. fl., sem framkvæmd var
af dr. Vilhjálmi Lúðvíkssyni og
fleirum.
Eins og áður segir, verður
skýrslan með þeim upplýsing-
um, sem unnt verður að byggja
á töku ákvörðunar um, hvort
stofnað verði undirbúningsfé-
lag til frekari framkvæmda.
FV 11 1971
7