Frjáls verslun - 01.11.1971, Blaðsíða 79
K70 hefur hlotið góða umsögn í erlendum blöðum.
HEILDVERZLUNIN HEKLA
H.F. flytur inn vinsælasta bíl-
inn á Islandi, Volkswagen. Sá
tími er liðinn, þegar allir Volks-
wagen voru eins, nema á litinn.
Nú er hægt að velja fjórar
megingerðir, sem fást í mismun-
andi útgáfum. 1200, 1302, 1600
og K70, auk sendiferðabíla.
1200 er næstur upprunalega
Fólksvagninum og ódýrastur af
þessum bílum, en 1300 er mjög
svipaður. 1302 hefur sama mót-
or. en stærra nef og MasPher-
son fjöðrun að framan, sem
breytir aksturseiginleikum bíls-
ins, auk þess sem farangurs-
rými eykst mjög.
1600, 1600L og Variant, hafa
nú verið framleiddir í nokkur
ár og njóta vinsælda, sem sterk-
ir og traustir bílar. K70 er
fyrsti vatnskældi bíllinn, sem
framleiddur er undir VW merk-
inu. Kom hann fullteiknaður til
VW, þegar fyrirtækið keypti
NSU verksmiðjurnar. Stutt er
síðan hann kom hingað, en hann
hefur fengið mjög góða umsögn
í erlendum blöðum.
Þá selur HEKLA mikið af
sendiferðabílum, pallbílum og
litlum hálfkössum. Einnig hef-
ur fyrirtækið umboð fyrir Land
Rover og Range Rover, sem hef-
ur vakið mikla eftirspurn að
undanförnu.
DAVÍÐ SIGURÐSSON er
umboðsmaður fyrir Fiat á ís-
landi. Fiat bílar hafa náð hér
miklum vinsældum, enda er um
margar gerðir að velja. Minnst-
ur er Fiat 600, sem nú mun
senn verða hætt að framleiða.
Næstur kemur Fiat 850 og eru
þessir tveir einu bílarnir frá
Fiat, með mótorinn aftur í.
Fiat 124 kom á markaðinn
fyrir fimm árum og 125 nokkru
síðar. Sá síðarnefndi er með
tvöfaldan yfirliggjandi knastás
og mjög líflegur bíll í akstri.
Fiat 128 kom á markaðinn fyrir
2-3 árum og var þá kosinn bíll
ársins. víða í Evrópu. Hann er
með mótorinn fram í og fram-
hjóladrif.
Nú er að koma á markaðinn
nýr smábíll frá Fiat og hefur
heyrst að hann muni jafnvel
koma í stað 850. Hann hefur
fjögurra strokka, 903 rúmsenti-
metra mótor, 47 hestafla, með
fimm sætum. Von er á honum
á markaðinn hér á landi fyrir
lok þessa árs.
Auk þessara bíla framleiðir
Fiat stóran bíl, 130, sem ekki
hefur verið fluttur hingað.
Hinn nýi Fiat 127, sem er að koma á markaðinn hér á landi.
FV 11 1971
79