Frjáls verslun - 01.11.1971, Blaðsíða 59
Auglýsingar
„Einn af eðlilegustu rekstrar-
liðum fyrirtækisins44
„Það er dýrt að auglýsa og því skiptir miklu máli
hvernig auglýsingafé er varið“
Frjáls verzlun ræðir við Krist-
ínu Þorkelsdóttur, aug'lýsinga-
teiknara, um auglýsingamál
hér á landi.
Flest ef ekki öll meiriháttar
fyrirtæki á íslandi, hafa löngu
gert sér grein fyrir því, að aug-
lýsingar eru rekstrarliður sem
erfitt er að vera án. Þróun aug-
lýsingatækni hefur þó verið
fremur hæg og það er ekki fyrr
en nú síðustu árin að ‘hún hef-
ur tekið stór skref fram á við
og það hefur gerzt með því að
framsýnt fólk hefur séð hvað
koma skyldi. og sérmenntað sig
í faginu erlendis.
Kristín Þorkelsdóttir hefur
verið viðriðin auglýsingar, aug-
lýsingateikningu og aðra aug-
lýsingagerð síðastliðin tíu ár, og
rekur nú auglýsingastofu við
Reynihvamm 2 í Kópavogi.
MIKLAR FRAMFARIR
SÍÐUSTU ÁRIN.
— Það hafa orðið miklar
breytingar síðan ég byrjaði
fyrst að fást við þetta. Áður var
það iðulega svo, að forstjórinn
eða sá sem var yfir fyrirtækinu,
sá auglýsingaþörf fyrir ein-
hverja vöru. Hann lagði niður
fyrir sér hvernig auglýsingin
skyldi vera. fór til teiknara og
sagði honum það, og hann gerði
svo teikninguna. Því næst fékk
forstjórinn teikninguna í hend-
ur, lét gera af henni myndamót,
samdi við hana texta og kom
henni í eitthvað blað eða tíma-
rit.
— Þessi þjónusta er talsvert
notuð ennþá, og það er vissu-
lega þörf fyrir hana en við
störfum á allt öðrum grund-
velli. Auglýsingastofa eins og
þessi þjónar þeim viðskiptavin-
um, sem eru reiðubúnir að
greiða hluta af auglýsingafé
sínu fyrir sérfræðingsaðstoð, til
að vera viss um að fá sem
bezta nýtingu.
SKIPULEG
SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ.
í samræmi við þetta eru við-
skiptavinir Kristínar fáir, en
margir þeirra eru stórir. Milli
auglýsingastofunnar og við-
skiptavinarins er mjög náið
samstarf og gagnkvæmt traust
enda er strax í upphafi gerður
Kristín Þorkelsdóttir.
vatnsþéttur samningur þannig
að báðir aðilar vita nákvæm-
lega hverju þeir eiga að búast
við af hinum. Dæmigerður við-
skiptavinur ver 250 þús. til
tveim milljónum króna í aug-
lýsingar árlega, og stofan sinnir
ekki beiðnum um gerð ein-
stakra auglýsinga, heldur starf-
ar eingöngu fyrir sína föstu við-
skiptavini. Þó ber þess að gæta
að samningur við fyrirtæki þarf
ekki nauðsynlega að spanna yf-
ir allt sem það býður. Hann
getur t.d. einungis náð til einn-
ar tegundar vöru eða þjónustu.
Menn kynnu að efast um að
þetta væri nægilegur grund-
völlur, en hann er samt nógu
góður til að þeir ellefu menn
og konur sem starfa við aug-
lýsingastofuna hafa kapp nóg
að gera.
Kristín hefur safnað að sér
miklu og góðu liði. Átta starfs-
manna hennar eru menntaðir
og með reynzlu í auglýsinga-
gerð. Þeir eru menntaðir sinn
í hverju landinu, svo þegar all-
ir leggja hausinn í bleyti verður
það nokkuð sterkur kokteill.
Stofan starfar eftir föstum
reglum sem báðir aðilar sam-
þykkja í upphafi. Þegar hún
hefur tekið að sér einhvern við-
skiptavin, ber fyrirtækinu að
tilnefna ákveðinn starfsmann
sinn sem auglýsingastofan snýr
sér til varðandi auglýsingamál
og önnur mál þeim tengd.
Tökum til dæmi fyrirtæki,
sem ætlar í auglýsingaherferð
fyrir einhverja vöru eða vörur.
Auglýsingastofan fær nauðsyn-
legar upplýsingar hjá fyrirtæk-
inu og gerir tillögu um auglýs-
ingaáætlun. Þegar hún hefur
verið samþykkt er hún áætlun
fyrirtækisins fyrir þann tíma
sem hún er gerð fyrir. í áætlun-
ina er m.a. tekinn áætlaður
kostnaður í krónum fyrir hvert
atriði sem á að framkvæma, og
einnig er tekið fram hvenær
og hvernig skuli framkvæma
hana.
Síðan er áætlunin fram-
kvæmd en viðskiptavinurinn
samþykkir hvert einstakt verk
sérstaklega, þannig að auglýs-
ingastofan bindur sig ekki al-
gerlega við áætlunina. Auglýs-
ingastofan greiðir allan kostnað
við útfærslu áætlunarinnar, en
innheimtir svo mánaðarlega hjá
fyrirtækinu útlagðan kostnað
og vinnulaun og lætur það fá
þann afslátt sem fáanlegur er
hjá birtanda. Gjald stofunnar
fyrir skapandi vinnu er í sam-
ræmi við gjaldskrá Félags ís-
lenzkra teiknara, og fyrir um-
FV 11 1971
59