Frjáls verslun - 01.11.1971, Blaðsíða 57
Svo virðist sem fulltrúa
OECD hafi aldrei verið ætlað
að hafa beint samband við ís-
lenzka vísindamenn, heldur að-
eins nokkra útvalda aðila, eink-
um á sviði stjórnsýslu. Það var
aðeins fyrir utanaðkomandi
þrýsting, að fáeinum íslenzkum
vísindamönnum gafst kostur á
að ræða stuttlega við fulltrúa
OECD, er að skýrslunni stóð.
Vissulega er það rétt að þessi
skýrsla OECD hefði getað ver-
ið réttari og fullkomnari en
raun varð á, ef hinn erlendi
höfundur hennar hefði ekki
treyst um of á matreiðslu
„bureau“-kratanna, svipað og
greinarhöfundur „Frjálsrar
Verzlunar“ kann að hafa flask-
að á. Gott dæmi um þessa teg-
und af matreiðslu kemur fram
í þeirri fullyrðingu greinarhöf-
undar, að einhverjir „hófsamir“
menn hafi neitað að undirrita
yfirlýsingu, sem 14 starfandi
vísindamenn sendu frá sér að
loknum fundi þeim um OECD-
skýrsluna, er greinarhöfundur
getur um. Sannleikurinn er sá,
að alls enginn neitaði að skrifa
undir umrædda yfirlýsingu,
sem lögð var fram í upphafi
fundarins, en ekki í lok hans
eins og höfundurinn nafnlausi
heldur fram. Allir starfandi vís-
indamenn, sem kjörnir voru til
þess að sitja þennan fund und-
irrituðu yfirlýsinguna, og eng-
inn skoraðist undan. Þessi yfir-
lýsing fól í sér gagnrýni á
vinnubrögð, framsetningu og
niðurstöðu hinnar margum-
ræddu OEGD-skýrslu.
En hitt er rannsóknaverk-
efni út af fyrir sig, hverjir hér-
lendir eru svo hörundssárir fyr-
ir hönd útlendrar skýrslu um
íslenzk innanlands vandamál.
Það má líka spyrja, hvort ein-
hverjir hérlendir séu svo ná-
tengdir skýrslugerðinni, að þeir
telji að sér vegið, þegar íslenzk-
ir vísindamenn sameinast í
gagnrýni á plaggi, sem útlent
er sagt. Hvernig má það vera,
að slík gagnrýni spilli einhverj-
um samkomulagsmöguleikum?
Hafi ein'hvern tíma stefnt til
málamiðlunar þá varð það ein-
mitt á þessum fundi um OECD-
skýrsluna, þegar vísindamenn-
irnir höfðu lagt fram gagnrýni
sína í formi fyrrgreindrar yfir-
lýsingar. Þarna hefur greinar-
höfundur augljóslega fengið
rangar upplýsingar eða tekið
rangt eftir. En því má ekki
gleyma, að framkvæmdanefnd
Rannsóknaráðs ríkisins hefur
verið furðu tómlát við að kynna
íslenzkum vísindamönnum hug-
myndir sínar um bætta vísinda-
starfsemi og rekstur hennar.
Eitt dæmið enn um sambands-
leysið að ofan,
íslenzkir vísindamenn hafa
ekki lagt fram neinar „patent“-
lausnir um, hvernig vísinda-
starfseminni verði bezt skipað.
En þeir hafa lagt fram hug-
myndir og tillögur um, hvernig
þeir telji starfseminni betur
komið í von um, að þannig nýt-
ist bæði fjármagn og fyrirhöfn
betur en nú. Lesendum „Frjálsr-
ar Verzlunar" mun vafalaust
þykja fróðlegt að vita, þótt
greinai’höfundurinn nafnlausi
hirði ekki um, að það var ein-
mitt einn af meðlimum fram-
kvæmdanefndar Rannsókna-
ráðs ríkisins, sem neitaði að
standa í „þrasi“ við vísinda-
menn“. Þannig voru nefndar-
störfin torvelduð og um leið
leitin að skynsamlegri lausn,
sem allir gætu við unað. En
„Frjáls Verzlun ætti að fylgjast
með, þegar lausnin loks finnst.
BIFREIÐAEIGENDUR
ViS alsprautum og blettum allar gerðir bifreiða
með okkar frábæru
POLY RET HAVN-lökkum.
Mjög fljót og góð afgreiðsla.
Athugið:
Gott útlit bifreiðannnar veitir eigandanum
sérstaka ánægju.
Bilasprautuu hf.
SIREIFAN 11, REYK.IAVÍK, SlMI 35035.
ÞAÐ HLAUT AÐ
KOMA AÐ ÞVI....
að einhver tæki
að sér að sjá um og
hafa umsjón með
útgáfu félagshlaða eða
annarra rita.
Nú, í fyrsta
sinn, bjóðum við að-
stoð þeirra, sem
hafa reynzluna.
Tökum að okkur að
annast útgáfu-
starfsemi fyrir félög,
félagasamtök og
skylda aðila.
FRJÁLST
FRAMTAK HF.,
Suðurlandsbraut 12,
Reykjavík.
FV 11 1971
57