Frjáls verslun - 01.11.1971, Blaðsíða 60
Starfsfólk á auglýsingastofunni.
sjónarstörf við birtingu auglýs-
inga greiðir fyrirtækið stofunni
15% af nettóverði birtinga. Við
keppumst við að fá sem hæsta
afslætti eða hagstæðast verð á
hverju því, sem verið er að gera
fyrir viðskiptavin okkar. Við
látum hann njóta allra slíkra
afslátta og að jafnaði náum við
það hagstæðari kjörum en hann
gæti sjálfur, að þóknunin til
okkar sparast honum í rauninni
mikið til alveg. Að því keppum
við líka.
— Hvers vegna fáið þið hærri
afslætti eða hagstæðara verð?
— Það er ofur eðlilegt. Allur
frágangur efnis, sem frá okkur
fer er unninn af fagmönnum.
Sá sem við því tekur til vinnslu
eða birtingar fær það rétt og
vel afgreitt. Þurfi hann frekari
skýringar eða aðstoð, þá er það
veitt af fólki sem kann sitt fag.
Bókhald hans. eftirlit og inn-
heimta einfaldast einnig, því
hann skiptir við einn aðila í
stað margra. Allt er þetta hag-
ræði sem sparar honum bæði
tíma og peninga og er því launa-
vert.
Fyrir birtingu í sjónvarpi
greiðir fyrirtækið þó brúttó-
upphæð birtingareikningsins,
en án sérstakrar umsjónarþókn-
unar til auglýsingastofunnar.
— Þetta er allt í föstum
skorðum Kristín, en bindið þið
ykkur við beinar auglýsingar?
— Nei, langt frá því. Það sem
við bjóðum er allar tegundir
beinnar og óbeinnar auglýsinga-
þjónustu. Undir óbeina þjón-
ustu má telja það sem almennt
er kallað „Public Relations“, en
það felur t.d. í sér undirbúning
undir blaðamannafundi, samn-
ingu kynningarbæklinga eða
stuttra kynningargreina (hand-
out) og þar fram eftir götunum.
Við bjóðum einnig markaðs-
Um allan heim
er beóió eftirTOYOTA
Síóasta ár var söluaukning
TOYOTA á Bandaríkjamarkaói
einum saman 76.5%
TOYOTA leggur hart að sér að geta ann-
að eftirspurn, þrótt fyrir að framleiða tvœr
milljónir bíla þetta órið.
TOYOTA er orðinn þriðji stœrsti bílafram-
leiðandi heims.
Markaðskannanir TOYOTA sýndu, að
kaupendur óskuðu eftir fimm eiginleikum
öðrum fremur:
1. Miklu vélarafli, en lítilli benzíneyðslu.
2. Þœgilegum akstri.
3. Styrkleika.
4. Glœsilegu útliti.
5. Lógu verði.
Með þetta fyrir augum er TOYOTA fram-
leiddur. Er nokkur furða, að hann selst?
TOYOTA-UMBOÐIÐ
Höfðatúni 2
Sími25111
Þjonusta. VENTILLSf ViógerÓir: sími 30690 Varahlutir: sími 31226
60
FV 11 1971