Frjáls verslun - 01.11.1971, Page 27
Framsóknarflokkurinn verður að horfast í augu við þá staðreynd, að hann er ekki sterkasti flokk-
ur ríkisstjórnarinnar. Hann á ekki sterkasta eins taklinginn í stjórninni og hann stjórnar ekki þýð-
ingarmestu ráðuneytunum.
marsson er undantekning, en
hann líður fyrir þá viðleitni
samstarfsmannanna að halda
honum og flokki hans í skugg-
anum.
Vel má vera, að Lúðvík Jós-
efsson hafi beinlínis ákveðið
stefnu ríkisstjórnarinnar í þýð-
ingarmiklum málum, án þess,
að hinir ráðherrarnir, og þar
með Magnús Kjartansson, fái
rönd við reist. Þegar er ákveð-
in stórfelld uppbygging togara-
flotans. Það er ekki ljóst, nema
hún verði að fara fram á kostn-
að iðnaðarins. Uppbygging tog-
araflotans var að vísu á stefnu-
skrá stjórnarinnar, en ekki
framkvæmdahraðinn. Lúðvík
Jósefsson hefur getað ráðið
honum, vegna þess, að hann
vissi, hvað hann vildi, og hvern-
ig hann átti að fara að því.
Magnús Kjartansson varð hins
vegar að byrja á því að kynna
sér iðnaðarmálin, þegar hann
settist í ráðherrastólinn, og
hingað til lítið gert annað en
fleyta áfram fyrirætlunum
fyrri ríkisstjórnar, eða beinlín-
is tafið fyrir þeim, án þess að
hafa mótað sína eigin stefnu.
Ríkisstjórnin þurfti eðlilega
vissan tíma til að athuga sinn
gang, eftir að hún komst til
valda. Þessi tími hefur ein-
kennzt af ótrúlegu fálmi og
mér liggur við að segja röfli í
einstökum ráðherrum. Ég hef
einn ráðherra sérstaklega í
huga. Hann hefur verið að
ræða mikilsverð mál, án þess
að þekkja nema mjög takmark-
að til málanna. Honum hefði
verið í lófa lagið að afla sér
nauðsynlegra upplýsinga, áður
en hann lét draga sig út í um-
ræður. En hann virðist algjör-
lega hafa vanrækt það, enda
er málflutningur hans meira
og minna kjaftæði út í loftið.
Ég læt það svo liggja á milli
hluta, hver ráðherrann er.
En þetta er aðferðin til að
skapa vantrú hjá almenningi.
Hvað á almenningur að hugsa,
þegar Tíminn boðar eina stefnu
í varnarmálum og Þjóðviljinn
aðra. Hvað á almenningur að
halda, þegar forsætisráðherra
og forseti Alþýðusambandsins
hafa sinn hvorn skilninginn á
launamálastefnu ríkisstjórnar-
innar. Hvernig getur fólk tek-
ið Framsóknarflokkinn alvar-
lega, þegar flokksmennirnir ríf-
ast um, hver hafi verið stefna
flokksins í varnarmálum síð-
ustu árin.
Það var lengi vitað, að ríkis-
stjórnin er ekki skipuð sérstök-
um stórmennum, og enginn
gerði kröfu til þeirra. En að
þeim mundi takast á örfáum
mánuðum að gera landið stefnu-
laust í varnarmálum og lands-
stjórnina reikandi í efnahags-
málum, var meira en flestir
áttu von á.
FV 11 1971
27