Frjáls verslun - 01.11.1971, Qupperneq 33
„minnsta hagkvæma stærð“
prjónaverksmiðju er mjög lítil.
Ekkert samhengi virðist vera
milli stærðar fyrirtækis og
þess, hvort fyrirtækinu vegni
vel eða illa. Það sem virðist
skipta mestu máli er þekking
stjórnandans.
SKIPULAGSVANDAMÁLIN
MEST f FATAIÐNAÐINUM
Þá segja hinir norsku sér-
fræðingar, að skipulagsvanda-
málin séu einna mest áberandi
í fataiðnaðinum. Þeir taka
fram, að þau snerti ekki alla
vöruflokka eins. Neyzla á
nokkrum vöruflokkum er nægi-
leg innanlands til að skapa
grundvöll fyrir sérhæfð fram-
leiðslufyrirtæki. Hins vegar
fullnægja aðrir vöruflokkar
ekki þessum skilyrðum. Verk-
smiðjur verða að fást við of
margar vörutegundir til að ná
því heildarmagni í framleiðslu,
sem nauðsynlegt er til að verk-
smiðjuframleiðslan sé arðvæn-
leg. Er mjög erfitt að koma við
hagræðingu í fyrirtækjum með
blandaða framleiðslu.
SÉRHÆFING
Fataiðnaðinum er skipt í létt-
ari fataiðnað — fataverksmiðj-
ur, sem framleiða nærfatnað og
léttan ytri fatnað — og þyngri
fataiðnað, sem framleiðir þyngri
ytri fatnað.
Níu fyrirtæki starfa í þyngri
fataiðnaði — framleiða karl-
mannafatnað, kápur og frakka.
Flest hafa fyrirtækin eig-
in verzlanir. Sérfræðingarnir
leggja áherzlu á nauðsyn náins
sambands milli verzlunar og
verksmiðju, þar sem það stuðli
mjög að aukinni sölu á inn-
lendri framleiðslu. Þau fyrir-
tæki, sem framleiða karlmanna-
fatnað hafa hagkvæmastan
rekstrargrundvöll. Þau hafa
möguleika á að standast alla
samkeppni í framtíðinni. Hins
vegar er lagt til, að fyrirtæki,
sem sinna annarri framleiðslu
í þessari grein, sérhæfi sig
meira, og skipti framleiðslunni
á milli sín.
EIN VERKSMIÐJA
Hinir norsku sérfræðingar
gera tillögur um gagngerðar
breytingar á skipulagi karl-
mannafataframleiðslunnar. —
Lagt er til, að framleiðendur
sameinist um rekstur einnar
verksmiðju, sem framleiði ein-
göngu karlmannabuxur. Þá
vilja þeir sjá samstarf um
tæknilega þekkingu og sníða-
þjónustu verða að raunveru-
leika.
STJÓRNARFÉLAG
Þá er lagt til að aðrar verk-
smiðjur sameinist um myndun
stjórnarfélags. Um eina fyrir-
mynd að stjórnarfélagi er
komist þannig' að orði í
Frá Gráfeldi. Þœgileg vetrar-
kápa.
skýrslu norsku sérfræðinganna:
„Stjórnarfélagið er sett yfir
daglega stjórn hinna ýmsu fyr-
irtækja. Þetta á aðeins við um
,,ytri“ málefni, sem snerta sam-
eiginlega starfsemi fyrirtækja-
hópsins. Stjórnarfélagið hefur
hins vegar engan rétt til að
skipta sér af innri reglum í
samningi milli fyrirtækis og
stjórnarfélags. Eigendur hvers
fyrirtækis stjórna fyrirtækjun-
um eftir sem áður.
Stjórn félagsins er skipuð
mönnum úr stjórnum fyrir-
tækjanna. Hafi eitthvert fyrir-
tæki ekki sérstaka stjórn, er
hún sett á laggirnar, og skipuð
stjórnendum eða eigendum fyr-
irtækisins. Með þessu er tryggt,
að stefna stjórnarfélagsins sé
jafnan mótuð af fyrirtækjun-
um sjálfum. Eitt meginverkefni
stjómarfélagsins verður því að
gæta þess, að hvert einstakt
fyrirtæki starfi í samræmi við
heildarstefnu þeirra.“
BLÖNDUÐ FRAMLEIÐSLA
Um léttari fataiðnaðinn er
m. a. komist að orði á þessa
leið: „Skipulagsleg uppbygging
Fyrirtækin framleiða margar
og mismunandi vörur, sem
þeirra fyrirtækja, sem fram-
leiða léttari fatnað er ekki góð.
framleiðslutæknilega séð eiga
lítið sameiginlegt. Við kom-
umst að raun um, að sömu vör-
urnar voru framleiddar í mörg-
um fyrirtækjunum.
Þetta blandaða vörusvið er
Kápa og frakki frá Samband-
inu undir ICELOOK nafninu.
aðalhindrunin í vegi aukinnar
framleiðni í fyrirtækjum þeim,
sem framleiða léttari fatnað.
SAMEIGINLEG
STJÓRN
Skipting framleiðslukostnað-
ar í fyrirtækjunum, miðað við
núverandi aðstæður, bendir til
þess, að litlir möguleikar séu
á að mæta verðsamkeppninni
frá fatnaðarframleiðendum við-
skiptalandanna. Sá möguleiki,
sem við sjáum til að bjarga
hluta af léttari fataiðnaðinum
á íslandi, er að fyrirtækin taki
upp samstarf undir sameigin-
legri stjórn, sem yfirtaki vissa
stjórnunarþætti, svo sem inn-
kaup, sölu og fjármál. Þetta
samstarfsform hefur þann
mikla kost, að öllum pöntun-
um, sem samstarfsfélagið fær,
er hægt að skipta niður á ein-
stök fyrirtæki, þannig, að þau
fengju pantanir á vörum, sem
hefðu ýmislegt sameiginlegt
varðandi framleiðslutækni.
Þessi fyrirtæki ættu svo fljótt
sem auðið er að taka upp við-
ræður um að koma á fót sam-
FV 11 1971
33