Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1971, Side 42

Frjáls verslun - 01.11.1971, Side 42
blossaði upp, starfsfólkið axl- aði ekki þá ábyrgð, sem einka- rekstur leggur á það, og kröf- urnar voru yfirgnæfandi. Lyfja- verzlun var þá mjög áhættu- söm, hvað þá nú, og það hlaut að koma skýrt fram eðlismun- ur einkareksturs og ríkisrekst- urs, þegar hvort tveggja var reynt, hvað og varð. FV: Nú er aftur tekið að ræða um ríkisrekstur hér á landi, að minnsta kosti virðist mönnum það liggja í yfirlýs- ingum stjórnvalda. ST: Já, annars er þetta svo afskaplega óljóst allt saman, hvað um er verið að tala, og því lítið um það að segja ennþá. En aðstæður hafa síður en svo snúizt á sveif með ríkisrekstri síðustu 50 árin, síður en svo. Orsakirnar, sem lágu því tii grundvallar á árunum 1920- 1930, að bá reyndist ekki hag- kvæmt að láta ríkið reka lyfja- verzlunina, hafa þvert á móti fremur vaxið að mikilvægi í þessari atvinnugrein. Ég hygg, að þetta sé að sannast í Noregi og Svíþjóð, þar sem tilraunir hafa verið gerðar undanfarið með aukin ríkisafskipti, þótt full reynsla sé ekki komin á það enn. Lyfjaverzlunin hefur orðið flóknari með hverju ár- inu, nú er kominn aragrúi af sérlyfjum, sem framleidd eru í verksmiðjum og eftir einka- leyfum, og framleiðsla apótek- anna minnkar stöðugt hlut- fallslega. Þetta krefst mun meiri þekkingar og miklu meira og flóknara birgðahalds, sem þýðir jú um leið aukna áhættu að ýmsu leyti. Nei, þær tilraunir til ríkisrekstrar í lyfjaverzlun, sem gerðar hafa verið, benda ekki til þess, að þar sé að finna svarið við spurningunni um hagkvæm- ustu lyfjadreifinguna, enda er slíkur ríkisrekstur hvergi í Vestur-Evrópu að neinu marki, nema þetta í Noregi og Sví- þjóð núna. Hér hafa áhrif rík- isvaldsins verið fremur of mik- il en of lítil, eins og ég vék að áðan, því miður fyrir þá, sem þurfa á lyfjum að halda. Það hefur verið gengið mun lengra en að veita eðlilegt og strangt aðhald, sem er sjálfsagt og í sjálfu sér nauðsynlegt í öllum atvinnurekstri, og þess vegna þarf að lagfæra ýmislegt, sem aflaga hefur farið vegna hringl- anda og meira að segja mis- notkunar á lyfjum, sem tekju- stofni ríkissjóðs. STEFÁN THORARENSEN hf. FV: Nú rekur þú ennþá verzlun með lyf, það mun vera stærsta lyfjaheildverzlunin í landinu? ST: Já, það var þannig, að á stríðsárunum seinni lokuðust siglingaleiðir frá Evrópu til ís- lands, og lyfjaflutningar hing- að féllu niður um leið. Ég snéri mér þá að því að útvega sam- bönd við Ameríku, og það tókst. Það kom eiginlega af sjálfu sér, að ég.fór að selja öðrum apó- tekum og héraðslæknum þessi lyf, og það leiddi svo til stofn- unar sérstakrar lyfjaheildverzl- unar. Mér þótti óhagkvæmt að reka apótekið í senn sem smá- söluverzlun og heildverzlun, og stofnaði heildverzlunina Stefán Thorarensen vegna heildsölu- dreifingarinnar. Þeirri verzlun var síðar breytt í hlutafélag. Það mun vera rétt, að Stefán Thorarensen hf. sé stærsta lyfjaheildverzlunin. En við verzlum einnig með hjúkrunar- gögn og margs konar kemískar vörur, og höfum loks umboð fyrir Agfa-lj ósmyndavörur, sem er rekið í sérdeild. FV: Líklega halda flestir, að Lyfjaverzlun ríkisins sé stærsta lyfjaheildverzlunin. ST: Það getur vel verið, en staðreyndin er samt sú, að Lyfjaverzlun ríkisins kemur á eftir einum fjórum eða fimm heildverzlunum, og hún annast fyrst og fremst lyfjadreifingu til ríkissjúkrahúsanna. Annars er fjöldinn allur af aðilum, sem verzlar með lyf, margir án til- skilins leyfis, og þar er auð- vitað gat í kerfinu. Slíkur galli í framkvæmd lyfsölulaganna er að sjálfsögðu alvarlegur, og hann er um leið furðulegur, þegar stjórnvöld hafa á hinn bóginn áhyggjur af of miklum dreifingarkostnaði. FV: Nú sagðir þú áðan, að lyfjaverzlunin hefði breytzt í grundvallaratriðum, þannig að framleiðsla sérlyfja í verk- smiðjum væri í sífelldum vexti, en framleiðsla apótekanna minnkaði að sama skapi. Er mögulegt að reka hér á landi umtalsverða lyfjaframleiðslu? ST: Nei, það tel ég, að sé ekki hægt. Við búum til ýms- ar algengar töflur og blöndum ýmis tiltölulega einföld lyf. Á þessum vettvangi gæti ef til vill orðið nokkur aukning, sér staklega ef tollaákvæði væru samræmd í þeim tilgangi að örfa slíka framleiðslu. En þau lyf, sem mestu máli skipta nú orðið, eru þessi sérlyf, fram- leidd í tengslum við stórar og dýrar rannsóknarstofur, sem sem við höfum engin tök á að koma upp. Tengslin milli þess- ara aðila verða að vera mjög náin, og sömuleiðis milli þeirra og dreifingaraðilanna. Við er- um ekki í þeirri aðstöðu, að geta starfað að neinu marki á þessum vettvangi. Og ég tel Saltvík á Kjalarnesi. 42 FV 11 1971

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.