Frjáls verslun - 01.11.1971, Qupperneq 71
Saab 99, nýrramódelið frá Saab.
SVEINN BJÖRNSSON & CO.
eru umboðsmenn fyrir SAAB
bíla hér á landi. Hafa bílar
þessir náð hér verulegri út-
breiðslu, enda hafa þeir vissa
eiginleika, sem henta okkar
vegum. Lengst af hafa þeir ver-
ið með tvígengisvél, en nú hef-
ur hún verið lögð niður , Saab
FV 11 1971
96, en hún var aldrei í Saab 99.
í staðinn kaupir Saab V4 mót-
ora af Ford í Þýzkalandi. Nú
er hætt að nota þessar vélar í
Ford, og því sennilega óhætt
að segja það upphátt að þær
hafa alltaf verkað betur í Saab
en í Taunus. Saab 96 hefur ver-
ið hér vinsæll bíll og reynzt
ia’-sæll ferðabíll enda í eigu
æði margra af þeim mönnum,
sem mest ferðast, svo sem hér-
aðslækna og sveitapresta.
Saab 99 fæst sem tveggja eða
fjögurra dyra bíll. Var hann
iengi á teikniborðinu, enn leng-
ur í prófun og útkoman er bíll,
sem hefur marga kosti, svo sem
mikið pláss, þægilega aksturs-
eiginleika og góðan frágang. Er-
lendis hefur hann verið talinn í-
við of kraftlítill, en það er ekki
gild kvörtun við okkar aðstæð-
ur. Auk þess framleiðir Saab
tveggja manna sportbíl, Sonnet,
með V4 vélinni.
71
MAZDA sjást nú í fyrsta sinn
á götum Reykjavíkur og stend-
ur til að hefja innflutning á
þeim innan skamms. Allir eiga
þeir bílar það sameiginlegt að
vera kraftmiklir miðað við
þyngd. 130 hestöfl í bíl, sem er
ekki nema 965 kíló er ekkert
smáræði.
Stóru fréttirnar frá Mazda
eru þó Wankel mótorinn. NSU
byrjaði fyrst að framleiða bíla
með honum, en Mazda fylgdi
fast á eftir og stendur nú fremst
í heimi í þróun þess mótors.
Wankel mótorinn er alger bylt-
ing í gerð mótora. Hann hefur
engan ventlaútbúnað, enga
stimpla né strokka. í stað
stimpla eru þríhyrningar, sem
snúast í hólki og færast við
sprengingar. Mótorar þessir
vekja sífellt meiri athygli bíla-
framleiðenda, enda eru þeir
miklu léttari en venjulegur
TÉKKNESKA BIFREIÐA-
UMBOÐIÐ flytur inn bíla frá
Skodaverksmiðjunum í Tékkó-
slóvakíu. Lengi fluttu þeir inn
stóra og rúmgóða station bíla
sem tóku sex manns. en nú hef-
ur það módel verið lagt niður,
enda komið til ára sinna. Núna
eru fluttir inn Skoda 100 S,
100 L og Skoda 110 L, sem allir
eru afkomendur Skoda 1000,
sem var fyrst fluttur inn 1966.
Þetta eru fjögurra dyra bílar,
með mótorinn afturí. Þá er enn
fluttur inn Skoda Octavia
Combi, sem er kunnuglegur,
eftir meira en áratugs notkun
hér á landi. Nýtt model kom
í ár frá Skoda, sem er 110 R
Coupé, tveggja dyra, fimm
maima, með hallar.di þaki (fast-
back).
Mazda kemur á markaðinn upp úr áramótum.
Hinn nýi Skoda 110 R Coupé.
mótor, taka minna pláss. hafa
lægra, ganga mýkra, en
kannske er mikilvægast af öllu,
að þeir menga minna loftið.
Svo kveður að, að möguleikar
eru á að General Motors í
Bandaríkjunum taki þá upp í
öllum s,num bílum 1974.
Bílar þessir fást í fjölbreyttu
úrvali 4-5 manna bíla, tveggja
dyra. fjögurra dyra og coupé.
Má reikna með að margir hafi
áhuga að athuga þessa nýju
bíla.
L