Frjáls verslun - 01.09.1972, Side 28
Hlutdeild IMorðurlands í
atvinnuleysinu hækkaði úr
38,9% 1969 í 60,3% 1971
Aðeins reiknað með 0,7% búsetuaukningu árlega næstu árin
*
Alyktanir atvinnumálaráðstefnu á iMorðurlandi um ástand og horfur
Á s.I. vori var haldin ráð-
stefna um atvinnumál á Norð-
urlandi og stóð fjórðungssam-
bandið að henni í samviniiu
við Alþýðusamband Norður-
lands. Ráðstefnan lagði áherzlu
á, að þróun síðustu ára sann-
aði ótvírœtt, að nauðsynlegt
væri að halda áfram sérstök-
um ráðstöfunum til að efla
atvinnulífið í fjórðungnum.
NÚVERANDI ÁSTAND
OG HORFUR.
Máli þessu til stuðnings
bendir ráðstefnan á, að þótt
atvinnuleysi hafi stórlega
minnkað í landinu og sums-
staðar sé skortur á vinnuafli,
væri því fjarri, að atvinnuleysi
hafi horfið í mörgum sjávar'
stöðum á Norðurlandi, enda
þótt að sá fjöldi fólks, sem
leiti atvinnu til vertíðarstarfa
á Suðurlandi sé ekki tekinn
með í dæmið um atvinnuþörf-
ina. Samkvæmt yfirliti Kjara-
rannsóknarnefndar hefur hlut-
deild Norðurlands í heildar-
atvinnuleysinu hækkað úr 38.9
% 1969 í 60,3% árið 1971.
Þetta sýnir á ljósan hátt, að
varanlegt atvinnuleysi stuðlar
beinlínis að búseturöskun í
mörgum þéttbýliskjörnum á
Norðurlandi. Jafnframt þessu
bendir ráðstefnan á, að meðal-
tekjur framteljanda voru 1970
í eftirfarandi þéttbýlisstöðum
á Norðurlandi undir þjóðar-
meðaltali: Skagaströnd, Sauð-
árkróki. Hofsósi, Siglufirði,
Dalvík, Hrísey, Raufarhöfn og
Þórshöfn. Sums staðar vantaði
allt að þriðjung að meðaltekj-
ur næðust í byggðalaginu. Við
samanburð kemur einnig í
ljós, að flest þessara byggða-
laga búa við atvinnuleysi og
ótraust atvinnulíf, enda brýn
nauðsyn, að atvinnumál þeirra
verði leyst með samræmdum
aðgerðum. Ráðstefnan lítur svo
á, að rneð þessum hætti mætti
koma i veg fyrir þá öru bú-
setutilfærslu, sem hefur átt
sér stað úr Norðurlandi síðustu
áratugina. Rétt er að benda á,
að búsetutilfærslan á síðasta
áratug hefur numið 2849, sem
er um 9% miðað við núver-
andi íbúafjölda Norðurlands.
Rétt er að vekja athygli á, að
samkvæmt mannfjöldaspá fyr-
ir Norðurland, sem áætlunar-
deild Framkvæmdastofnunar-
innar hefur gert, og byggist á
núverandi búsetuþróun, má á
næstu árum gera ráð fyrir að-
eins 0,7% búsetuaukningu á
Norðuriandi framvegis á ári.
Ráðstefnan sendi frá sér mat
á aðstæðum í einstökum at-
vinnugreinum og benti jafn-
framt á leiðir til úrbóta.
SJÁVARÚTVEGUR.
Ráðstefna Fjórðungssam-
bands og Alþýðusambands
Norðurlands um atvinnumál
bendir á, að fiskveiðar við
Norðurland hafa á síðari ár-
um aðallega verið stundaðar
með þrennum hætti, hvað
snertir stærð og gerðir skipa.
Blönduós — vaxandi iðnaðarbœr. Atvinnumáiaráðstefna Norðlendinga telur, að beina verði
þjónustufyrirtœkjum til Norðurlands og stórefla iðnaðinn.
26
FV 9 1972