Frjáls verslun - 01.09.1972, Page 33
Staðarskáli:
HeVgarferðir Reykvíkinga
til Norðurlands stöðugt
algengari
Það er notalegt að koma í
áningarstað í Staðarskála í
Hriitafirði eftir ferð um Borg-
arfjörð og yfir Holtavörðuheiði
á leið norður í land. í Staðar-
skála er rekin veitingasala allt
árið. Þar eru á borðum Ijúf-
fengar grillsteikur og kjúkl-
ingar ásamt margs konar öðru
góðgæti. Séu menn á ferð að
kvöldlagi og sæki að þeim
svefnhöfgi er líka hægt að
gista í skálanum.
Þeir bræður Magnús og
Eiríkur Gíslasynir hófu veit
ingarekstur í Staðarskála árið
1960 cg veittu þá kaffi og
smárétti. Fjórum árum seinna
var skálinn stækkaður, og enn
var bætt við hann fyrir tveim
árum en samt reynist hann
þegar vera of lítill vegna þeirr-
ar miklu umferðaraukningar,
sem orðið hefur á leiðinni um
Hrútat'jörð.
80 MANNS í SÆTI.
Núna rúmast um 80 manns
í sæti í Staðarskála og veitir
ekki af því að langferðabílar,
sem halda uppi áætlunum milli
Norður- og Suðurlands hafa
þar viðkomu á matmálstímum.
Svo hefur einnig verið um
ferðahópa á vegum Ferða-
skrifstofu Zoega, sem allir
hafa snætt í Staðarskála, ef
leiðin hefur legið norður í
land. Matur er framreiddur
frá kl. 7.30 til 23.30 á sumrin
og einnig er þá opið fyrir
farþega næturrútunnar milli
Akureyrar og Reykjavíkur, en
yfir vetrarmánuðina er opnað
kl. 9 að morgni og haft opið
eitthvað fram eftir kvöldi eins
og ástæða þykir til. Mest er
aðsóknin að Staðarskála í júlí
og ágúst og starfa þar þá um
20 manns en á veturna geta
jafnvel liðið tveir eða þrír
dagar, að sögn Magnúsar Gísla-
sonar, án þess að nokkur líti
inn.
ÆTLA AÐ STÆKKA
GISTIRÝMIÐ
Staðarskáli er á tveimur
hæðum. alls um 600 fermetrar.
Á jarðhæð eru 5 tveggja
manna gistiherbergi, sem hafa
verið í stöðugri notkun í allt
sumar, og er áformað að
byggja gistirými fyrir 20
manns til viðbótar. Gistirýmið
og baðaðstaða, sem því fylgir
er nýlegt og sömuleiðis hefur
mjög snyrtileg salernisaðstaða
verið tekin í notkun í skálan-
um nýlega. í skálanum er enn-
fremur selt bensín fyrir Esso
og Shell og þar er þvottastæði.
Magnús Gíslason er bjart-
sýnn á rekstur Staðarskála,
þó að árstíðabundnir erfið-
leikar séu fyrir hendi. Hann
sagði, að áberandi væri, hvað
Reykvíkingar gerðu orðið mik-
ið af því með lengri frístund-
um, að fara í helgarferðir
norður í land að sumarlagi og
hefðu þá margir viðdvöl í
skálanum. Slíkt ferðalag er
heldur varla í frásögur fær-
andi lengur, því að eftir lið-
lega þriggja stunda akstur á
fjölskyldubílnum eru Reykvík-
ingar komnir til Norðurlands.
Staðarskáli liggur líka mjög
vel við fyrir stefnumót manna
að sunnan, vestan, norðan og
austan. Magnús hefur því full-
an hug á að vekja athygli á
Staðarskála sem fundarstað
fólks úr þessum landshlutum,
sem þannig gæti mætzt á
miðri leið.
Umferðar-
tölur
Vegagerð ríkisins gerir
talningu á farartækjum,
sem Ieið eiga norður og
suður yfir Holtavörðuheiði,
og fer hún fram hjá Grænu-
mýrartungu, fyrsta bæ, sem
komið er að í Hrútafirðin-
um. Þess ber að gæta, að
þar er auk Norður- og
Austurlandsumferðar mæld
umferð til og frá Stranda-
sýslu.
Árið 1970 í júlímánuði
áttu að mcðaltali 344 öku-
tæki leið þama um á sól-
arhring en mest varð um-
ferðin 744 ökutæki á sólar-
hring. í fyrra var umferð-
in í júlí 431 ökutæki á
sólarhring að meðaltali, en
760 ökutæki í hámarksum-
ferð á einum degi.
Staðarskáli í Hrútafirði er orðinn hin reisulegasta bygging.
FV 9 1972
31