Frjáls verslun - 01.09.1972, Side 41
ræktarmenn. Þeir benda á að
öryggiskerfið við búin sé þre-
falt. Engu að síður hefur orð-
rómur verið á kreiki um, að
minkur úr búi sunnanlands
hafi sloppið laus og ráðizt inn
í hænsnabú. Þessu mótmæla
minkavæktarmenn eindregið og
rannsókn máls af þessu tagi
mun helzt hafa leitt til þeirr-
ar niðurstöðu. að um skemmd-
arverk hafi verið að ræða af
hálfu einhvers aðila, sem hafi
viljað koma óorði á minka-
ræktina og hleypt út dýri.
MERKINGAR ERFIÐAR.
Erfitt reynist að fullyrða
neitt um þetta og því vaknar
sú spurning, hvort ekki sé
hægt að merkja minka við-
komandi búa, til þess allavega
að taka af allan vafa, ef mink-
ur úr minkabúi er staðinn að
verki og drepinn, og láta við-
komandi bú sæta ábyrgð. Við
spurðum Adolf Björnsson álits
á þessu atriði í lok samtalsins
og hann svaraði því til, að
slíku yrði ekki auðveldlega við
komið. „Hvers konar merki á
fótum dýranna, t. d. hringlaga
klemma, sem sumir hafa bent
á til lausnar þessu máli, væri
til lítils gagns. Ef dýrið gæti
ekki losað sig við merkið
myndi það einfaldlega naga af
sér löppina. Brennimerking
gæti þó komið til greina, að því
er ég hygg, sagði Adolf Björns-
son að lokum.
Verzlun:
Góð sambúð við Kaupfélag
Skagfirðinga
- segir Kristján Skarphéðinsson í Matvörubúðinni s.f.
Kristján Skarphéðinsson við afgreiðslu í Matvörubúðinni.
— Sambúðin við Kaupfélag
Skagfirðinga er hin ágætasta
og ég hef ekki orðið var við
annað, en að kaupfélagið vilji
selja mér þá vöru, sem ég þarf
til umboðssölu og get fengið
frá því. Þetta á líka við um
verksmiðjur KEA á Akureyri,
sem ég verzla mikið við, sagði
Kristján Skarphéðinsson, sem
rekur Matvörubúðina s.f. á
Sauðárkróki.
Á Sauðárkróki eru reknar
nokkrar verzlanir en þar er í
fléstum tilfellum um það að
ræða, að eigendurnir standa
sjálfir í búðinni og hafa ekki
annað starfslið. Hjá kaupfélag-
inu er rekin umfangsmesta
matvöruverzlunin á staðnum,
í þremur búðum, en Matvöru-
búðin s.f. kemur næst að
stærð. Þar starfa nú fjórir við
afgreiðslu.
ÞRIGGJA ÁRA FYRIRTÆKI.
Það eru þrjú ár síðan rckst-
ur Matvörubúðarinnar s.f. var
hafinn, en áður sá Kristján,
sem er Reykvíkingur, um
rekstur félagsheimilisins Bif-
rastar á Sauðárkróki.
Kristján segir, að engin
streita sé í samskiptum við
helzta keppinautinn á staðnum,
kaupfélagið. Fólk verzli jöfnum
höndum hjá honum og kaup-
félaginu enda hefur úrvalið í
matvöru og hreinlætisvörum
verið svipað hjá báðum aðilum.
Allan ost, smjör og unnar kjöt-
vörutegundir fær Kristján frá
kaupfélaginu en mjólkina sei-
ur það eitt á Sauðárkróki.
SLÁTURSAMLAG
SK AGFIRÐIN G A.
Þá hefur Matvörubúðin s.f.
átt mikla samvinnu við Slátur-
samlag Skagfirðinga, sem er
átta ára gamalt. Það eru sam-
tök bænda, sem sjálfir sjá um
sölu á kjöti og öðrum slátur-
afurðum sínum. Fær Matvóru-
búðin s.f. kjöt sitt frá samlag-
inu og eins selur það líka mik-
ið í einstakar verzlanir í
Reykjavík.
ÓDÝRARA FRÁ AKUREYRI.
Kristján kaupir mikið af
vörum frá Akureyri enda
verða þær mun ódýrari fyrir
viðskiptavininn en þær vörur,
sem fluttar eru alla leið sunn-
an frá Reykjavík. Munar það
1.60 kr., hvað það er dýrara
að flytja hvert kíló frá Reykja-
vík en Akureyri. Vegum er
haldið opnum til Sauðárkróks
tvisvar í viku allan veturinn
og sagðist Kristján geta haldið
tiltölulega lítinn lager, því að
hann fengi afgreiddar sending-
ar til sín reglulega og jafnóð-
um og pantanir bærust.
Um afraksturinn af verzlun-
inni sagði Kristján, að hann
væri engan veginn slíkur, að
FV 9 1972
39