Frjáls verslun - 01.09.1972, Qupperneq 43
unnt væri að gera þá hluti,
sem hann langaði til. Fara
þyrfti með mjög mikilli g'át
enda hefði tilkostnaður aukizt
svo gífurlega, að heildarútkom-
an væn lakari nú en áður.
ÖFLUG
LEIKLISTARSTARFSEMI.
Eins og áður var greint frá
er Kristján aðfluttur frá
Reykjavík, og var bifvélavirki
hjá kaupfélaginu áður en hann
tók við rekstri félagsheimilis-
ins og síðar Matvörubúðarinn-
ar. Sagði Kristján að nokkuð
hefði verið um það, að fólk
úr öðrum landshlutum flyttist
til Sauðárkróks á árunum rétt
fyrir 1950.
í tómstundum er Kristján
virkur þátttakandi í störfum
Leikfélagsins, en það er hið
fyrsta sem starfaði á íslandi,
stofnað löngu fyrir aldamót.
Félagar í leikfélaginu eru
núna um 50 og eru oft sýnd
tvö leikrit á ári. Margir kunn-
ir bæjarbúar á Sauðárkróki
eiga það til í frístundum sínum
að bregða sér í ólíklegustu
gervi og tigna leiklistargyðjuna
Thalíu á sviðsfjölunum í Bif-
röst. Og er það starf enn unn-
ið í sjálfboðavinnu.
Hliía verður betur að framleiðslu-
fyrirtækjum
Sauðárkrókur orðinn nógu stór sem þjónustubær
- segir Hákon Torfason,
— Ný vatnsveita er stærsta
framkvæmdin, sem bæjarfclag-
ið hér á Sauðárkróki hefur
ráðizt i á þessu ári. Vatnið er
sótt í land Veðramóts og er
aðalæðin til bæjarins 4 kíló-
metrar. Til þessa höfum við
notazt við yfirborðsvatn úr
Sauðá, en vatnið frá Veðra-
móti, sem við byrjuðiun að
bora eftir á s.l. vetri, er mjög
gott, og segja sérfræðingar, að
það jafnist á við Gvendar-
brunnavatn.
Með þessum inngangi hó_f
Hákon Torfason, bæjarstjóri á
Sauðárkróki, að kynna okkur
helztu verkefni bæjarfélags-
ins um þessar mundir. Og
Hákon hélt áfram:
— Við vitum, að dreifikerf-
ið í bænum verður að endur-
nýja, því að vatnsnotkunin
eykst. Hér er starfandi mjólk-
ursamlag og tvö frystihús auk
tveggja slátubhúsa á haustin.
Aukinna gæða vatnsins er
krafizt og fékk kaupfélagið að
byggja nýtt sláturhús með því
skilyrði, að vatnsveitan yrði
bætt. Er ætlunin að reyna að
komast langleiðina með hana í
haust ,en alls gerum við ráð
fyrir, að framkvæmdir við
hana með virkjun, stofnæð og
miðlunargeymi kosti 13 millj-
ónir.
FLUTTU MALBIK
FRÁ AKUREYRI.
Á Sauðárkróki var malbik-
aður fyrir allmörgum árum
partur af gatnakerfi bæjarins,
bæjarstjóri
sem nú er orðið 10 kílómetrar.
Var hann unninn með tækjum,
sem nú eru á ísafirði, en sam-
tök sveitarfélaga höfðu keypt.
Reyndist erfitt að flytja tækin
milli landshluta, þannig að
samstarfshugmyndin varð að
engu. En nú í sumar er búið
að malbika 1,4 kílómetra á
Sauðárkróki. Var malbiklð
keypt frá Akureyri og flutt
á bílum á Krókinn, Alls voru
flutt þannig 1700 tonn af mnl-
biki á 12 bílum, sem nokkurn
veginn höfðu við að mata mal-
bikunarvélina á Sauðárkróki
Flutningskostnaður vegna mal-
biksins mun hafa verið á aðra
milljón.
HITAVEITA í 20 ÁR.
í vetur var borað fyrir hita-
veitu. Boruð var ný hola, 565
metra djúp, en önnur eldri
dýpkuð niður á 577 metra.
Varð árangurinn af þessum
borunum mjög góður. Hita-
veita á Sauðárkróki er 20 ára
gömul og er jarðhitasvæðið
við Áshildarvatn. Þar fæst
nægilega mikið af 70 stiga
heitu vatni og er fyrirsjáan-
Hákon Toríason, bœjarstjóri á Sauðárkróki.
FV 9 1972
41