Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 57
ARTEMIS
ARTEMIS er elzta starfandi
nærfatagerðin á landinu, en þó
alltaf jafn ung, með smekkleg
tízkusnið unnin af vandvirk-
um höndum. ARTEMIS vör-
umar eru þess vegna eftirsott-
ar og töluvert sendar úr landi
þó ekki sé um beinan útflutn-
ing að ræða.
ARTEMIS hefur frá upphafi
verið í höndum sömu aðilja,
sem alltaf leggja áherzlu á
nýtízku snið við hæfi íslend-
inga án ónothæfra öfga, gæða-
efni, vandaða vinnu og góðar
umbúðir. Sala ARTEMIS-var-
anna hefur aukizt jafnt og
þétt, þrátt fyrir frjálsan inn-
flutning sams konar varnings.
ARTEMIS hefur alltaf tekið
þátt í Fatakaupstefnunni, utan
einlu sinni, og telur öllum
aðilum mikinn hag að því að
viðskiptin séu aðallega gerð
þar. Viðskipti ARTEMIS gerð
á Fatakaupstefnunni hafa lika
aukizt verulega ár frá ári, og
það verður alltaf erfiðara og
erfiðara að afgreiða vörur tím-
anlcga til þeirra verzlana, sem
ekki gera pantanir sínar á
kaupstefnunni. Þetta ættu þeir
að gera sér Ijóst, sem láta lijá
líða að koma þar við.
Á meðfylgjandi mynd er ver-
ið að afgreiða viðskiptavini á
síðustu kaupstefnu og á hinni
myndinni nýjasta nýtt frá
ARTEMIS, sein sýnt var á
tízkusýningu kaupstefnunnar,
nýtízku náttföt úr léttu efni
skreytt sérstæðum litríkum
leggingum. Framleiddir eru
líka stuttir náttkjólar í sama
stíl.
DYNGJA HF.
Prjónastofan Dyngja, Egils-
stöðum, framleiðir annars veg-
ar til útflutnings og hins vegar
á innanlandsmarkað, peysur á
dömur, herra og börn. Einuig
eru prjónuð jerseyefni, sem úr
er saumaður alls konar fatnað-
ur. Fyrirtækið framleiðir aðal-
lega tízkufatnað, minna af
stöðluðum fatnaði. í ár er
tízkuflíkin angórupeysa.
FV 9 1972
55
L