Frjáls verslun - 01.02.1974, Side 21
Eitt öflugasta fyrirtæki Danmerkur
I alþjóðaviðskiptum
INlýir starfsmenn mega ekki kvænast meðan á starfsþjálfun stendur
Eitt elzta og þekktasta fyr-
irtæki Danmerkur er Austur-
Asíuverzlunarfélagið hf. Jafn-
framt því, að vera meðal
hinna kunnustu, þá er það
rekið með nokkuð sérstökum
hætti á nútíma mælikvarða,
þ. e. a. s. með sömu aðferðum
og notaðar hafa verið frá
stofnun þess. Ungir menn,
sem ráða sig til starfa hjá
Austur-Asíufélaginu, og
hyggjast komast upp valda-
stigann, verða t. d. að heita
því að kvænast ekki þau sex
ár, sem starfsþjálfunin stend-
ur yfir.
Mönnum er bannað að reykja
í vinnutímanum, nema í matar-
hléum og þeir verða að vera
snyrtilega klæddir og sítt hár
er stranglega bannað. Ef hinir
nýju starfsmenn, sem taka þátt
í rekstrarþjálfuninni kvænast
meðan á henni stendur, eru þeir
umsvifalaust reknir. Margir
Vestur-Evrópubúar segja, að
þetta sé íhaldssemi i meira lagi,
en þrátt fyrir stífar starfsreglur
og skilyrði, þá sækja 300 til 400
ungir menn árlega um starf, en
aðeins 100 eru ráðnir. Mogens
Pagh, stjórnarformaður Austur-
Asíufélagsins, sem sjálfur er
þekktur fyrir snyrtimennsku og
fallegan klæðaburð, heldur því
statt og stöðugt fram, að leynd-
ardómur velgengni félagsins fel-
ist einmitt í þessum gamaldags
rekstrarreglum.
„Völdin innan félagsins,
sem er skipa og verzlunar-
félag, eru mjög dreifð“, seg-
Hér eru tveir valdamestu
menn Austur-Asíufélagsins í
skrkifstofu stjórnarformanns,
en þeir eru Mogens Pagh, for-
maður, og V. Schmidt, aðal-
framkvæmdastjóri.
ir forstjórinn og starfsemin er í
50 löndum í fimm heimsálfum.
Þess vegna þurfum við starfs-
fólk, sem við getum treyst. Við
ráðum starfsmenn beint út úr
gagnfræða- eða menntaskóla á
aldrinum 17 til 19 ára. Við gríp-
um þá, áður en þeir fara til frek-
ari náms, eins og t. d. háskóla."
„Við kennum þeim samkvæmt
okkar eigin kennslukerfi og
með starfsþjálfun, sem tekur
IVi ár, og eru þeir þá undir
ströngu eftirliti. Eflaust rikir
meiri agi, en þekkist hjá öðrum
fyrirtækjum nú.“
20 TIL 25 ARA ERLENDIS
Að mörgu leyti virðist Austur-
Asíufélagið sigla á móti stefnu
annarra fyrirtækja og sumir
rekstrarfræðingar halda því
fram, að starfsmenn, sem einu
sinni lifðu fyrir skylduræknina
við fyrirtækið, hugsi nú orðið
meira um eigin frama. Ungir
framkvæmdamenn nú á tímum
eru t. d. tilbúnir að skipta um
starf, ef það leiðir til þess, að
frami þeirra verði meiri. Aust-
ur-Asíufélagið reynir að ráða
starfsmenn á unga aldri og
kenna þeim strax að setja hags-
muni fyrirtækisins fram fyrir
persónulega ávinninga. Það fyr-
irfinnst varla sá yfirmaður í
fyrirtækinu, sem ekki hefur
farið þessa leið innan þess og
flestir þeirra dveljast í 20 til
25 ár hjá útibúum Austur-Asíu-
félagsins erlendis, áður en þeir
snúa aftur til starfa í Danmörku.
HEILDARVELTAN ARIÐ
1972 NAM 2.270 MILLJ.
DALA
Það er ótrúlegt, að svo íhalds-
samt fyrirtæki skuli vera
danskt, en á undanförnum árum
hafa Danir þótt frjálslyndastir
Norðurlandabúa á flestum svið-
um þjóðlífsins. Árið 1972 nam
heildarvelta félagsins 2.270
millj. dala, en þar af voru tekj-
ur þess erlendis 87 % af heildar-
tekjunum. Veltuaukningin á
sama tímabili nam 12% miðað
við árið 1971 og hagnaðurinn
jókst um 24% á sama tíma og
varð 12 milljónir dala.
STOFNAÐ f THÆLANDI
ÁRIÐ 1897
Austur-Asíufélagið var stofn-
að í Thælandi árið 1897; upp-
hafsmaður þess var fyrrverandi
FV 2 1974
21