Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 78
Ullarverksmiðjan Gefjun
Hinn 27. nóvember 1972 voru
liðin 75 ár síðan fyrstu vélar
voru settar í gang í verksmiðju
Tóvinnufélags Eyfirðinga, sem
síðar varð Ullarverksmiðjan
Gefjun.
Tilgangurinn með stofnun Tó-
vinnufélagsins var aðallega sá,
að létta undir með ullariðnaði
heimilanna, sem þá var veiga-
mikill þáttur í íslenzku þjóðlífi.
Árið 1930 yfirtók Samband
ísl. samvinnufélaga rekstur fyr-
irtækisins, og í dag er Gefjun
orðin stórfyrirtæki með um 200
manna starfslið og framleiðir
m. a. ullarteppi, fataefni, áklæði,
gluggatjöld, svefnpoka og sæng-
ur, og auk þess garn og band
ýmiskonar fyrir vefnað og
prjónaskap.
Á árinu 1973 voru fiutt út
93.000 ullarteppi frá Gefjun, og
þar er einnig framleitt allt band
í ullarpeysur þær, er Fataverk-
smiðjan Hekla flytur úr landi.
Árið 1972 notaði Gefjun um
570 tonn af hráefni til fram-
leiðslu sinnar. Þar af var íslenzk
ull um 400 tonn, gerviefni um
100 tonn og erlend ull um 70
tonn.
Kappkostað hefur verið að
fylgjast með tækniþróuninni, og
á síðustu árum hefur verið var-
ið stórum fjárhæðum til að end-
urnýja vélakost verksmiðjunn-
ar, svo að ná mætti sem mestri
framleiðni og aukinni hag-
kvæmni í framleiðsluaðferðum.
Verksmiðjustjóri: Hjörtur
Eiríksson.
78
FV 2 1974