Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 75
En hvert er álit Sverris á
auglýsingum í hljóðvarpinu?
— Auglýsingum í hljóðvarp-
inu er þröngur stakkur snið-
inn, og þær eru á eftir tíman-
um. Það er mín skoðun að
þær beri að hanna á svipuðr
um grundvelli og auglýsingar
í sjónvarpi. Þar eð í þessu til-
felli hver auglýsing sé unnin
inn á segulband, sem síðan er
notað i hvert skipti sem aug-
lýsingunni er útvarpað.
Öðru máli gildir með til-
'kynningarnar, þær eru, að
mínu viti, góð og nauðsynleg
þjónusta í því formi sem þær
nú eru.
En hvaða auglýsingaleið tel-
ur Sverrir áhrifaríkasta? Að
hans áliti fer það eftir því,
hvað verið er að selja, og
hverjum. Hann sagði, að aug-
lýsendur leituðu til auglýs-
ingafyrirtækja til þess að fá
svar við þessu.
Skilningur auglýsenda á
gildi auglýsinga fer vaxandi,
að áliti Sverris. — Það er
mikill mismunur á viðhorfi
auglýsanda nú, frá því sem
var fyrir 30 árum. Mikið er
leitað til auglýsingastofanna,
sem nú veita alhliða auglýs-
ingaþjónustu. Áður var verk-
efninu lokið þegar búið var
að teikna auglýsinguna, nú
mætti fremur segja að það
væri að byrja.
— Gildi slagorða í auglýs-
ingum er mjög mikið, segir
hann. Slagorð standa jafnfætis
vel gerðu merki að gildi. Þau
hafa mikið að segja í auglýs-
ingaherferðum og slagorð eins
og t. d. Silli og Valdi hafa
haft í rnörg ár hafa mikið að
segja. Slagorð eru hugverk, í
sumum tilfellum verðmæt
eign, og ættu því að njóta
verndar. Annars er það ekki
algengt hér að fyrirtæki not-
færi sér slagorð, sem annað
fyrirtæki hefur tileinkað sér.
Hinsvegar má finna dæmi
þess að, reynt sé að stæla vel-
heppnaðar auglýsingar.
Mikið er rætt og ritað um
olíusölubann Araba og sam-
drátt í framleiðslu hráefna,
sem nú stendur fyrir dyrum,
ef ekki rætist úr.
Sverrir sagði, að erfitt væri
að segja um, hvort orkuskort-
urinn ætti eftir að koma við
auglýsingastarfsemi, en hann
bætti því við, að ef orkuskort-
ur verður almennt í heimin-
um, þá snerti það alla starf-
semi í landinu og fram-
kvæmdalíf, einnig auglýsinga-
starfsemi. — En markaðurinn
þarf tíma til þess að aðlaga
sig þessum breytingum og
komast í jafnvægi, en ef orku-
skortur verður almennt í
heiminum veldur það mjög
miklum áhrifum, ítrekaði
Sverrir Kjartansson hjá Aug-
iýsingaþjónustunni að lokum.
SORPSKÁPARNIR
FRÁ BMT BORGARNESI
ERU í SÉRFLOKKI
Við höfum sett á markaðinn nýja gerð af skápum fyrir
sorppoka; nýtt útlit, aukið öryggi. Þessir skápar eru
fyrir þá, sem leggja áherslu á snyrtilegt umhverfi. Þeir
hehta raunar alls staðar, en einkum við stærri íbúðar-
hús, á útivistarsvæðum, við ýmsa sölustaði og á sam-
komustöðum.
Allar upplýsingar gefnar í símum 93-7248 og 93-7374.
BLIKKSLIÐJA MAGNÚSAR THORVALDSSONAR
PÉTUR OG
VÁIDIMAR H.F.
SKIPAGÖTU 14 —
AKUREYRI
Sími á vöruafgreiðslu:
1 19 17.
Sími á skrifstofu:
1 20 17.
FASTAR VÖRU-
FLUTNINGALEIÐIR:
Akureyri — Reykjavík
Reykjavík — Akureyri
byggðar á áralangri
reynslu, sem tryggir
öryggi og hraða.
AFGREIÐSLA í
REYKJAVÍK:
Vöruflutningamiðstöðin,
Borgartúni 21,
sími 10 4 40.
FV 2 1974
75