Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 84
tilkomu nýja húsnæðisins og
bætts tækjakosts, að sögn Jóns
H. Oddssonar.
Framkvæmdastjóri Hús-
gagnaverksmiðjunnar Eins h. f.
er eins og áður sagði Jón H.
Oddsson og stjórnarformaður
Guðbrandur Sigurgeirsson.
Starfsmenn fyrirtækisins eru
23. Árið 1972 var heildarvelta
fyrirtækisins 16 milljónir króna,
en ekki hefur 'heildarveltan fyr-
ir árið 1973 verið reiknuð út.
Símanúmerið hjá Húsgagna-
verksmiðjunni Eini h.f, er (96)
11230 og í húsgagnaverzluninni
(96) 11536.
• •
Orkin hans
IMóa
Árið 1971 var opnuð hús-
gagnaverzl'unin Örkin hans
Nóa, að Ráðhústorgi 7a, Akur-
eyri. Verzlunin er í eigu hjón-
anna Jóhanns Ingimarssonar
og Guðrúnar Helga.dóttur.
Verzlunin hefur á boðstólum
fjölbreytt úrval af húsgögnum
svo sem sófasettum, borðstofu-
húsgögn'um, eldhúshúsgögnum,
sófaborðum og mörgum fleiri
húsgögnum.
Ennfremur selur verzlunin
ýmsar gjafavörur, aðallega
postulín frá danska fyrirtækinu
Hoolmegaard. Örkin hans Nóa
er í rúmgóðu húsnæði í miðbæ
Akureyrar og er ein stærsta
verzlun sinnar tegundar á Norð-
urlandi.
Að sögn Jóhanns Ingimarsson-
ar eiganda verzlunarinnar var
sala á húsgögnum og gjafavör-
um á síðasta ári mjög góð.
Sagði Jóhann, að hann hefði
viðskiphi við fjölmarga fram-
leiðendur í landinu, en einnig
sæi hann um hönnun húsgagna
fyrir nokkra þeirra.
Örkin hans Nóa flytur inn
nokkuð af erlendum húsgögn-
um, aðallega frá Norðurlöndum
Örkin hans Nóa er ein stærsta verzlun sinnar tegundar á
Norðurlandi.
og Þýzkalandi. Eru það borð-
stofuhúsgögn, sófasett, sófaborð
og eldhúshúsgögn úr tré.
Vildi Jóhann benda framleið-
endum á það, að mikið atriði
væri fyrir íslenzka framleiðend-
ur að bæta framleiðslu sína eft-
ir megni, þar sem tollar á inn-
fluttum erlendum húsgögnum
hefðu lækkað mikið og framleið-
endur mættu því vænta mikill-
ar samkeppni.
Sífellt eru ný húsgögn að
koma á markaðinn, og að sögn
Jóhanns leggur Örkin hans Nóa
mikla áherzlu á að hafa við-
skipti við sem flesta framleið-
endur og hafa mikið úrval á
boðstólum í verzluninni. Að
lokum má geta þess, að síma-
númerið hjá Örkinni hans Nóa
er (96) 11509. Aðalmarkaðs-
svæði húsgagnaverzlunarinnar
er Akureyri og nærsveitir.
Kaupgarður
.... á leiðinni heim
I
Smiöjuvegi 9 Kópavogi
84
FV 2 1974