Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 81
Skóverksmiðjan Iðunn
Á aðalfundi Sambands ísl.
samvinnufélaga árið 1936 var
samþykkt að hefja skófatnaðar-
iðnað á Akureyri. Sama ár var
reist hæð fyrir skógerðina ofan
á hús Skinnaverksmiðjunnar,
og voru vélar keyptar frá Sví-
þjóð til framleiðslunnar.
Fyrstu árin störfuðu 50-60
manns í verksmiðjunni. Flest
komst starfsliðið upp í 120
manns, en í byrjun árs 1973
störfuðu þar 56 manns.
í janúar 1969 brann mikill
hluti verksmiðjunnar, og var þá
strax hafizt handa um byggingu
nýs húsnæðis og vélakaup. Verk-
smiðjan var byggð upp í því
formi, sem hún er d dag, með
aðstoð erlendra sérfræðinga.
í verksmiðjunni eru fram-
leiddir karlmanna- og unglinga-
skór, götuskór kvenna og fjöl-
breytt úrval af kuldaskófatnaði.
Árið 1972 voru framleidd í
verksmiðjunni 53.000 pör af skó-
fatnaði, sem eingöngu voru seld
á innanlandsmarkaði, bæði til
kaupfélaga og kaupmanna, og
hafa framleiðsluvörur verk-
smiðjunnar þannig verið á boð-
stólum á um 100 útsölustöðum
á landinu.
Verksmiðjan hefur ávallt
kappkostað að hafa á boðstólum
vandaða vöru fyrir sanngjarnt
verð.
Verksmiðjustjóri: Richard
Þórólfsson.
SJÁVARFRÉTTIR
fjalla um útgerð og fiskiðnað,
markaðsmál, rannsóknir, vísindi, tækni
og nýjungar.
Áskriftarsimar 82300 - 82302.
FV 2 1974
81