Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 55
Eins og dr. Þráinn Eggertsson
hefur bent á, bjargaðist það sem
rnest var virði, en það er mann-
auðurinn. Farið er að telja hann
mikilvægari en fastafjármuni
við mat á „rauverulegum” þjóð-
arauði, enda verður að fjárfesta
í uppeldi manna, menntun og
verkkunnáttu, eigi síður en í
húsum, vélum og tækjum.
HYGGINDI EFTIR Á SÉÐ.
Nokkurar gagnrýni hefur orð-
ið vart á ráðstöfun fjár Viðlaga-
sjóðs til húsakaupa og alþjóða-
fjár til hafnargerðar utan Eyj-
anna. Það er alltaf auðvelt að
reikna dæmi, eftir að hafa kíkt
á útkomuna. Sömuleiðis verður
að hafa í huga þær þjóðfélags-
legu aðstæður, sem ríktu, þegar
ákvarðanir voru teknar. Með því
á ég við, að mikið þensluástand
ríkti á vinnumarkaðnum, ekki
sízt í byggingariðnaði, og verð-
bólga var í algleymingi. Þess
vegna verður að telja hvort
tveggja hafa verið hyggilegt
miðað við aðstæður, að beina
húsakaupum út á við (auk þess
sem byggingartíminn skipti
miklu máli) og leggja skatta á
landsmenn.
Þá munu nokkur brögð að því,
að sveitarfélög hafi ekki staðið i
skilum við Viðlagasjóð með út-
svar og aðstöðugjald.
Fyrirsjáanlegt er, að veruleg-
ur kostnaður verður samfara
endurreisn Eyjabyggðar og að
Viðlagasjóður þarf á fé að halda.
í því góðæri, sem ríkir — og von-
andi verða fleiri — ætti lands-
mönnum ekki að verða skota-
skuld úr því að leggja fé til sjóðs-
ins, svo að hann þurfi ekki að
safna skuldum.
Fjölbreyttasta vöruúrval
landsins
Heildsala — Smásala
Akureyri
SJÁVARFRÉTTIR
@
Nýtt tímarit
um sjávar-
útvegsmál,
markaðsmál,
tækninýjungar
og margt
fleira.
*
Askrif tasímar
82300 - 82302
FV 2 1974
55