Frjáls verslun - 01.02.1974, Page 37
heldur einu sinni eða tvisvar á
ári.
Við í Globus leggjum á það æ
ríkari áherzlu að koma þjónust-
unni í viðunandi horf. Hjá okk-
ur er rekin sérstök þjónustu-
deild með þremur mönnum. Auk
þess höldum við árlega nám-
skeið fyrir viðgerðarmenn til að
annast eftirlit og viðgerðir á
gröfum, traktorum, heybindivél-
um og öðrum tækjum sem við
seljum.
Við lítum þannig á að ekki
sé nóg að selja vélarnar, okkur
beri skylda til að sjá eigendum
fyrir nauðsynlegri þjónustu,
bæði hvað varðar varahluti og
viðgerðir.
Að lokum langar mig að
minnast á það, að ég tel vöxt
fyrirtækisins mikið vera að
þakka því hve við höfum ver-
ið heppin með starfsfólk.
Einn starfsmaður hefur verið
hér allt frá byrjun, en það er
Ragnar Bernburg, sem nú er
aðstoðarframkvæmdastjóri. Að-
albókari fyrirtækisins, Berta
Engilbertsdóttir hefur einnig
starfað hjá Globus því nær frá
byrjun.
MINJAGRIPA
SALA í
HJARTA
BÆJARINS
VIÐ
SENDUM
UM ALLAN
IIEIM
HAFNARSTRÆTI 96
klædaverzlun SIGURDAR GUDMUNDSSONAR H.F.*HAFNARSTRÆTI 96 - AKUREYRI
MEITILLINN
ÞORLÁKSHÖFN.
SÍMAR:
99-3611 og 99-3663.
• Útgerð, fiskverkun
• Hraðfrysting, söltun
• Skreiðarverkun
• Söltun og frysting hrogna
• Saltfiskverkun og þurrkun
• Humarfrysting
• Síldar- og fiskimjölsverksmiðja
FV 2 1974
37