Frjáls verslun - 01.10.1974, Blaðsíða 34
stöðvar á Egilsstöðum íyrir
Ú.Í.A. og þá með löglegri
keppnisstærð á keppnisvöllum
og sundlaug. íþróttahús og
sundlaugar eru á nokkrum
stöðum, þótt enn vanti nokk-
uð á í þeim efnum. íþróttaá-
hugi virðist mikill. Það er
spilaður körfubolti, handbolti
og knattspyrna og frjálsíþrótt-
ir eru talsvert iðkaðar.“
KIRKJUMÁL.
„Mér finnst safnaðarstarf á
Austurlandi alveg viðunandi
og víða verulega gott. Nýjar
kirkjur rísa og þeim gömlu er
yfirleitt vel við haldið. Við
höfum alls staðar presta,
marga unga og suma mjög
góða kennimenn.“
STJÓRNUNAR-
ERFIÐLEIKAR.
Einhverjir mestu erfiðleik-
ar okkar, ekki bara okkar
Austfirðinga, heldur dreifbýl-
isins í heild, er að við íslend-
ingar búum við stjórnkerfi,
eða embættismannakerfi, sem
er ákaflega sterkt. En embætt-
isniennirnir hafa takmarkað-
an skilning á vandamálum og
högum dreifbýlisins, lifa i sín-
um fílabeinsturni í sínum
ráðuneytum eða stjórnarstofn-
unum og stýra í krafti reglu-
gerða, sem þeir yfir höfuð
hafa samið sjálfir. Þeirra á-
hrif eru gífurleg og þetta köll-
um við Kerfið, með stórum
staf. Það er orðið allt of sterkt
miðað við þá grundvallarhug-
sjón okkar, sem kemur
fram í stjórnarskrá lýðræðis-
ríkis, þar sem Alþingi hefur
löggjafarvald og myndar rík-
isstjórn, vegna þess að styrk-
ur kerfisins bvggist á þrem
mjög sterkum grundvallar-
punktum.
í fyrsta lagi hafa embættis-
mennirnir æviráðningu, sem
er mjög alvarlegur hlutur, því
menn þurfa ekki að vera hæf-
ir í viðkomandi störf í dag,
þó þeir hafi einhverntímann
verið það, eða þegar þeir voru
settir í það á sínum tíma. Og
í öðru lagi er styrkur þeirra,
og ekki minni, sem byggist á
því, að stjórnmálamennirnir
eiga allt undir embættismanna-
kerfinu, þegar þeir eru í
stjórnarandstöðu. Þetta hefur
Kerfið gert sér fullljóst og not-
fært sér í æ ríkara mæli. I
þriðja lagi byggist styrkur
þeirra á því að yfirleitt semur
Alþingi nokkuð stutt og grein-
argóð iög, sem stefna í á-
kveðna átt. Svo taka embætt-
ismennirnir lögin og búa til
reglugerðir út úr þeim, jafn-
vel margar. Úr grunnskóla-
lögunum á t. d. að búa til
24 reglugerðir. Þó að lögin
stefni í suður, stefna reglu-
gerðirnar oft í austur eða
vestur en beinast þó allar að
einu meginmarki, það er að
færa sem allra mest úrskurðr
arvald, bremsuvalds, til hinna
ýmsu ríkisstofnana og ráð-
inna embættismanna, sem eru
bara ráðnir en ekki lýðræðis-
lega kjörnir.
Það er orðið lífsnauðsynlegt
að engin reglugerð fái stað-
festingu nema þingmenn þeir á
löggjafarþinginu, sem unnu að
setningu laganna, yfirfari hana
og samþykki áður. Við þurf-
um að styrkja hornsteina lýð-
ræðisins, löggjafarþingið okk-
ar og ríkisstjórnina okkar,
sýna henni meiri virðjngu og
jafnvel að fela henni meiri
völd en hún hefur. Taka þarf
til endurskoðunar allt skipu-
lag stjórnkerfisins. íslending-
ar búa við gamla danska em-
bættismannakerfið með leiðin-
legri utanáhleðslu. Það hefur
á engan hátt fylgt okkar þjóð-
félagsþróun og fellur ekki inn
í okkar þjóðfélagsmynd i dag.
Bókhaldsþjónustan Berg hf. Egilsstöðum:
Sér um bókhald fyrir mikinn
hluta Austurlands
Bókhaldsþjónustan Berg hf.
er ungt fyrirtæki í mjög örum
vexti á Egilsstöðum, en eins
og nafnið bendir til, tekur
fyrirtækið að sér bókhald.
Sigurjón Bjarnason, ungur
maður með Samvinnuskóla-
menntun, veitir Bókhaldsþjón-
ustunni forstöðu.
Er FV ræddi við hann,
sagðist hann hafa byrjað á
þessu í bílskúr á Egilsstöðum
vorið 1972. Þar var lágt undir
loft og var hann í fyrstu einn.
Áður höfðu nokkrir menn á
Egilsstöðum tekið að sér bók-
hald, en það tók orðið allan
34
þeirra frítíma og drógu þeir
þá úr þessari starfsemi. Þá sá
einn maður um bókhald um
tíma, en var hættur nokkru
áður en Sigurjón kom, með
þeim afleiðingum að lá við
neyðarástandi hjá sumum,
sem notið höfðu þessarar þjón-
ustu.
FULLKOMIN BÓKHALDS-
VÉL.
Stofnendur að hlutafélaginu
Berg eru m. a. þeir sömu og
ráku bókhaldsþjónustu áður,
en þeir höfðu á sínum tíma
keypt fullkomna bókhaldsvél,
sem sett var í bílskúrinn.
Nú, aðeins röskum tveim
árum seinna, eru starfsmenn-
irnir orðnir þrír, og anna
ekki eftirspurn. Reiknar Sig-
urjón með að bæta við sig end-
urskoðanda og einni stúlku til
viðbótar, bæði til að anna eft-
irspurninni og eins til að
geta boðið núverandi viðskipta-
vinum fullkomnari þjónustu.
Berg hf. sér um bókhald m. a.
þriggja hreppa, opinberra
stofnana svo sem skóla og fé-
lagsheimila, og einnig einka-
fyrirtækja, félaga og einstak-
linga. Viðskiptavinirnir eru á
svæðinu norðan frá Borgar-
firði og suður að Djúpavogi.
FV 10 1974