Frjáls verslun - 01.10.1974, Blaðsíða 66
HFrá
rítsijórn
Viðskiptin við Kanada
Fyrir nokkru fór hópur íslenzkra kaup-
sýslumanna í kynnisferö til Kanada í boði
þarlendra stjórnvalda. Hallgrímur Fr.
Hallgrímsson, aðalræðismaöur Kanada hér
á landi, átti mikilvægan þátt í að ferð
þessi var farin en Félag íslenzkra stór-
kaupmanna sá að öðru leyti um undirbún-
ing hennar.
Á næsta ári ætla Vestur-íslendingar að
minnast 100 ára landnáms íslendinga í
Kanada með fjölbreyttum hátíðahöldum á
Gimli í Manitoba. Síöustu fréttir herma,
að hvorki meira né minna en 400 manns
hafi látið skrá sig í ferðir vestur um haf
í sambandi við þátttöku í þessum hátíða-
höldum. Rík tengsl menningarlegs- og til-
finningalegs eðlis hafa lengi legið milli ís-
lands og Kanada. Þau hafa þó fyrst og
fremst verið einstaklingsbundin eða tak-
markazt við hóp Vestur-íslendinga hvað
Kanadabúa snertir. Er raunar sérkennilegt
að búseta íslendinganna í Kanada skuli
ekki hafa leitt af sér mun víðtækari kynni
og samskipti þessara tveggja þjóða, sem
Islendingar og
Palestínuarabar eru alls góðs maklegir
en það er tímabært að íhuga hvers konar
forystusveit það er, sem vill fá alþjóðlega
viðurkenningu sem fulltrúar þeirra út á
við og leiðtogar heima fyrir. Um þetta efni
eru mjög deildar meiningar hjá Palestínu-
aröbum sjálfum en svo vill til, að eftir
harðvítugar deilur helztu foringja Araba-
ríkjanna, var ákveðið, að hin svonefndu
„Frelsissamtök Palestínu“, með Arafat í
broddi fylkingar, skyldu koma fram fyrir
hönd Palestínumanna en ekki Hussein
J órdaníukonungur.
Þarna hefur farið fram mjög hrikalegt
valdatafl í þröngri klíku ráðamanna Ar-
aba, og furðar marga stjórnmálafrétta-
menn reyndar á, að það skyldi ekki enda
með mannvígum miðað við fyrri dæmi um
samskipti eyðimerkurhöf ðingj anna.
um margt eiga sömu hagsmuna að gæta.
Eða er það einmitt skýringin á, að sam-
gangurinn hefur ekki orðið meiri?
Við höfum starfað með Kanadamönnum
að eflingu varna á N.-Atlantshafi og ís-
lenzkir fiskútflytjendur hafa stofnað til
samstarfs við kanadíska starfsbræður sína
til verndar sameiginlegum hagsmunum í
Bandaríkjunum. Verzlun og viðskipti milli
landanna hafa hins vegar lítil sem engin
verið, ef frá eru talin flugvélakaup Loft-
leiða hjá Canadair-verksmiðjunum fyrir
allmörgum árum. Víst er, að Kanadamenn
framleiða fjölbreytt úrval landbúnaðar- og
iðnaðarvara, sem okkur er nauðsyn að
kaupa erlendis frá. Með vaxandi velmegun
í Kanada má líka gera ráð fyrir, að þar
geti skapazt markaður fyrir tízkufatnað og
aðra ullarvöru okkar auk hugsanlega ann-
arrar iðnaðarframleiðslu. Full ástæða er
til að skoða nákvæmlega aðstæður á Kan-
adamarkaði, bæði með hagkvæm innkaup
í huga og eins möguleika til útflutnings.
Arafat
Fyrir þessari ákvörðun, sem ekki er á
neina lund tekin í samráði við þjóðir við-
komandi ríkja, bukka flestir fulltrúar á
þingi Sameinuðu þjóðanna sig nú — í
skugga olíuvopns Arabanna.
Hin svonefndu „Frelsissamtök Palestínu“
hafa fyrst og fremst getið sér orð fyrir
hryðjuverk. Mikill fjöldi Palestínumanna
fyrirlítur Arafat og morðsveitir hans. Ara-
fat hefur hins vegar orðið ofan á í bili og
mætti með byssuna í sölum allsherjar-
þingsins.
Það er gott til þess að vita, að Islending-
ar skuli ekki vera svo ofurseldir Aröbum í
orkumálum, aö þeir láti þvinga sig til sam-
stöðu með ofbeldisseggjum en geti vegið
og metið málin sjálfstætt og hagað at-
kvæði sínu í samræmi við eigin niðurstöð-
ur.
66
FV 10 1974