Frjáls verslun - 01.10.1974, Blaðsíða 45
Höfn í Hornafirði
Fyrsta húsið á staðnum var
verzlunarhús
Rætt við Sigurð Hjaltasson, sveitarstjóra
Byggð í Höfn í Hornafirði hófst með því að þangað var flutt
verzlunarhús, sem áður hafði verið við Papós, og reist voru
tvö íbúðarhús, í tengslum við verzlunina. Það var árið 1897.
Var Höfn þá í Nesjahreppi, en árið 1946 var Hafnarhrepp-
ur stofnaður og voru íbúar hins nýja hrepps þá rösklega 300.
Síðan hefur fjölgað jafnt og þétt og hraðast nú síðustu ár.
Árið 1964 voru íbúarnir t. d. 714, en eru nú um 1150. Miðað
við síðasta manntal voru þar 413 manns 18 ára og yngri.
FISKIÐNAÐURINN
AÐALATVINNUVEGURINN
Sigurður Hjaltason, sveitar-
stjóri, sagðd í viðtali við FV.
að fiskiðnaður og sjávarútveg-
ur væri aðalatvinnuvegurinn
á staðnum. 4 til 15 bátar frá
50 upp í 200 lestir að stærð,
eru gerðir þaðan út, og stunda
þeir allar algengustu veiðar,
meira að segja síldveiðar í
auknum mæli, sem vart geta
þó talist algengar hér við land
nú.
f fyrra bárust 160 lestir síld-
ar þar á land, en í lok nóv.
nú í ár, var lestafjöldinn kom-
inn á þrettánda hundraðið,
Kaupfélag Skaftfellinga rekur
stórt og mjög fullkomið nýtt
frysti'hús á staðnum og sér yf-
irleitt um alla fiskvinnslu en
hlutafélag er um fiskimjöls-
framleiðsluna.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ.
Mikið landbúnaðarhérað er í
nágrenni Hafnar, og er Höfn
þjónustumiðstöð fyrir það. Þar
er t. d. mjólkursamlagið, slát-
urhúsið og afurðasala bænd-
anna. Þá eru þar iðnfyrir-
tæki svo sem trésmiðjur,
vélsmiðjur og netagerð. Sig-
auka iðnaðinn frekar til að
atvinnulífið yrði ekki eins
'háð sveiflum sjávarútvegsins.
VILJA KAUPA
SKUTTOGARA
Til þess að draga úr þessum
sveiflum, hefur nú nýlega
verið stofnað hlutafélag á
Höfn um kaup á nýjum skut-
togara, en málið er ekki komið
á það stig að unnt sé að skýra
frá því í smáatriðum. Engin
skuttogari er nú gerður út frá
Höfn.
MIKLAR FRAMKVÆMDIR
Af helstu framkvæmdamál-
um hreppsfélagsins, sem nú
eru á döfinni, nefndi Sigurður
m. a. byggingu 2. áfanga gagn-
fræðaskólans, en þar á að vera
íþróttahús og sérkennslustofur.
Búið er að gera stórt átak í
varanlegri gatnagerð, og verðr
ur haldið áfram við það verk-
efni eftir því sem efni leyfa.
Hafnarframkvæmdir eru í
gangi, sem miða að því að
auka viðlegupláss í höfninni
og byrjað er á smíði nýrrar
löndunarbryggju í tengslum
við nýja frystihúsið. Þá er nú
unnið að dýpkun á hafnar-
svæðinu.
Af stærri verkefnum má
svo loks nefna að verið er að
byrja á byggingu heilsugæzlu-
miðstöðvar fyrir alla Austur-
Skaftafellssýslu, sem verður á
Höfn. Heimamaður, Guðmund-
ur Jónsson, fékk verkið. Fyrst
verður aðeins hluti stöðvarinn-
ar byggður upp. Þá er einnig
kominn vísir að elliheimili á
Höfn, sem sýslusjóður rekur
með hreppnum.
NÆGILEG RAFORKA ER
AÐAL HAGSMUNAMÁLIÐ.
„Hagsmunamál okkar númer
eitt er nú að tryggð verði
nægileg raforka hér til þess að
við þurfum ekki að sitja hér
í myrkri um lengri eð(a
skemmri tíma eins og í fyrra-
vetur,“ sagði Sigurður. „í sum-
ar var gert nýtt lón við Smyrl-
árvirkjun en það hefur ekki
safnast verulegt vatn í það,
svo við erum uggandi um
framleiðslu virkjunarinnar í
vetur. 200 k/w díselstöð er
væntanleg hingað á næsta ári,
en þar til hún kemur, verðum
við að bjarga okkur með notk-
un gastúrbínu, eins og í
fyrra,“ sagði hann að lokum.
Elzta hús á Höfn, gamla verzlunarhúsið, sem flutt var frá Papós.
Útlitið bendir til, að tímabært sé að taka ákvörðun um örlög
þess.
FV 10 1974
45