Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 9
Hinn ungi upprennandi
stjórnmálamaður, Ólafur
Ragnar Grímsson, er sagð-
ur kanna hvar hann eigi
að bera ni'ður í pólitíkinni
næst. Hann mun hafa
mestan hug á að ganga í
Alþýðubandalagið og
verða „Ieiðtogaefni“ þess
í náinni framtíð. Þegar
kunnur stjórnmálamaður
á hægri væng heyrði
þetta, sagði hann: „Það
er ágætt, þá klofnar Al-
þýðubandalagið enn einu
Það hefur vakið athygli
manna að forsetaembætt-
ið hefur fest kaup á glæsi-
legum Mercedes Benz
fólksbíl á heldur óheppi-
legum tíma, þ.e.a.s. með-
an Vestur-Þjóðverjar
beita okkur efnahags-
þvingunum með löndun-
arbanni kaupum við rán-
dýrar lúxusvörur af þeim.
— ® —
Sömu sögu er að segja
af Magnúsi Kjartanssyni
— vini alþýðunnar —
hann er að kaupa sér toll-
frjálsan lúxusbíl frá Vcst-
ur-Þýzkalandi, rösku ári
eftir að hann féll af ráð-
herrastóli. Magnús er ef-
laust þakklátur Vestur-
Þjóðverjum fyrir löndun-
arbannið og verðlaunar
þá með þessum hætti.
Þeir hugsa ckki oft um
sjálfa sig leiðtogar Al-
þýðubandalagsins, eða
hvað???
Tveir framsóknarmenn
vilja losna af þingi sem
fyrst. Jón Skaftason hef-
ur verið að leita að em-
bætti undanfarið, en
flokksleiðtogarnir hafa
verið tregir til að verða
við óskum hans. Nú vil 1
Jón verða sendiherra og
fær þá ósk uppfyllta.
Ingvar Gíslason gengur
með ráðherrann í magan-
um og segist vera hættur
á þingi fái hann ekki ráð-
herrastól þegar í stað.
Ekki er vitað hvort
flokksleiðtogarnir, Ólafur
og Þórarinn, ætli að verða
við þeim óskum.
Það vakti athygli í-
þróttamanna, þegar Iands-
lið íslands og A-Þýzka-
lands kepptu í knatt-
spyrnu í Reykjavík á dög-
unum, að austur-þýzki
þjálfarinn kom til leiks
með austur-þýzka sendi-
herranum í einkabíl hins
síðar ncfnda. Að leikslok-
um ók sendiherrann einn
í burtu, en þjálfarinn
varð að fara í langferða-
bíl með fótboltamönnun-
um. Þannig afgreiða
menn málin í alþýðulýð-
veldunum.
— • —
í haust kemur út afar
athyglisverð sjálfsæfisaga
Stefáns íslandi — hins
heimsfræga óperusöngv-
ara — í bókinni segir
hann frá ýmsum skemmti-
legum atburðum æfi sinn-
ar, bæði í Skágafirði og
mörgum frægustu söng-
höllum Evrópu. Indriði G.
Þorsteinsson, rithöfundur,
færði bókina í letur, en
hún á að heita: „Áfram
veginn".
e
Spár sölustjóra Flug-
leiða. vestanhafs um tals-
verða aukningu í farþega-
flutningum Loftleiða yfir
Atlantshafið á þess'u
sumri hafa reynzt réttar.
Á fundi Flugleiðamanna
hér í fyrrahaust taldi
John Loughery, sölustjóri
í New York, að flutning-
arnir myndu aukast til
muna á þessu ári. Það
mátti hann víst ekki segja
einhverra hluta vegna og
aðrir forstöðumenn fé-
lagsins héldu hinu gagn-
stæða fram. Allar Loft-
lciðavélar fara sneisafull-
ar frá Bandaríkjunum um
þessar mundir, oft þrjár
á kvöldi. Þá eru eftir tug-
ir farþega, sem ekki fá
far og er mörgum komið
á flugvélar annarra fé-
laga. Þrátt fyrir slíkar að-
gerðir eru yfirbókanir
Loftleiða svo miklar, að
fjöldi farþega situr eftir
með sárt ennið. Fyrir
nokkru kom til handalög-
mála í afgreiðslu Loft-
leiða í New York og varð
að kveðja lögregluna á
vettvang til að skakka
leikinn. Þar voru far-
þegar að slást um sætin í
vélinni. Þykir mörgum
þessi yfirbókanastefna
félagsins kynleg og mætti
spyrja hvað ráði því að
ekki voru áætlaðar fleiri
ferðir úr því að farþeg-
arnir cru fyrir hendi.
— • —
Lögreglan í Reykjavík
hefur gert sérstakar ráð-
stafanir umhverfis vestur
þýska sendiráðiðiReykja-
vík, kynnt sér umhverfi
hússins gaumgæfilega og
einnig húsið sjálft. Einnig
hefur verið efnt til a.m.k.
einnar sérstakrar skotæf-
ingar vegna þessa. Við-
búnaður þessi stendur í
beinu sambandi við rétt-
arhöld yfir Baader Mein-
hof hryðjuverkamönnum,
sem í haldi eru í Vestur-
þýzkalandi.
FV 6 1975
9