Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 23

Frjáls verslun - 01.06.1975, Síða 23
Erindi flutt á Viðskiptaþingi V.í. 1975 IMarkaðsbúskapur og hlutverk verðmyndunar með hliðsjón af árangri annarra búskaparhátta Eftir dr. Þráin Eggertsson Umræður um skipan efna- hagsmála hafa undanfarna fimm mannsaldra a. m. k. snú- ist um það öðru fremur, hvort sé ágætara hagkerfi, hið sósíal- íska eða hið kapítalíska. Á það hefur þó verið bent, að þessi hugtök eru fremur haldlítil, þegar á reynir, þar sem þau eru notuð, allt að því gáleysis- lega, um hagkerfi, sem eiga fátt sameiginlegt. Til dæmis eru Sovétríkin, Júgóslavía og Tans- anía talin sósíalísk lönd, en Bandaríkin, Svíþjóð og Japan kapitalísk. Þessi tvískipting er við það miðuð fyrst og fremst, hver er talinn eigandi fram- leiðslutækja þjóðarbúsins. Séu þau sameign þjóðar ríkir sósíal- ismi, en kapítalismi, þegar ein- staklingar eru skráðir eigendur. Eignarréttarhugtakið er hins vegar afar óljóst og erfitt að henda reiður á því. Rétt skráðra eigenda má t. d. takmarka, uns þeir eru eigendur aðeins að nafninu. Þetta gerðist í Þýzka- landi á árunum 1936 til 1945, þegar þar var rekinn áætlana- búskapur með strangri mið- stjórn, sem að öllu leyti svinaði til hins miðstýrða kerfis í Ráð- stjórnarríkjunum, nema þvi, að einstaklingar voru yfirleitt taldir eiga fyrirtækin í landinu, enda þótt þeir réðu litlu sem engu um rekstur þeirra. Annað dæmi má nefna um, hversu tvírætt eignarréttarhugtakið er. í nokkrum löndum eru nú gerð- ar tilraunir með markaðssósíal- isma, sem telja verður athyglis- verðar. Þar eru fyrirtæki í þjóðareign, en starfsfólk fer með stjórn þeirra í umboði al- þjóðar, en sér til aðstoðar ræð- ur það framkvæmdastjóra, yfir- leitt í samvinnu við stjórnvöld í viðkomandi héraði. Það hefur viljað brenna við, að þessir framkvæmdastjórar hafi tekið öll völd í sínar hendur, enda hefur verkafólk í löndum, þar sem þetta hefur verið reynt, oft skort almenna og tæknilega þekkingu á rekstri fyrirtækja. Við slíkar aðstæður er hætt við, að „hin nýja stétt“ hlaupi í skarðið. Allt sýnir þetta, að mestu máli skiptir, hverjir ráða í raun og veru yfir atvinnutækj- unum, en ekki, hverjir eru taldir eigendur þeirra að lögum. Þegar öllu er á botninn hvolft, er þjóðarbúskapurinn svo margslungið fyrirbrigði, að hvers konar tvískipting er gagnslítil, ef gera á rækilegan samanburð á hagkerfum ólíkra landa. Auk yfirráðanna yfir framleiðslutækjunum þarf að hafa í huga, hvort efnahagsmál ráðast á mörkuðum eða af vald- stjórn; hvort atvinnustarfsemi fyrirtækja og einstaklinga er stjórnað með beinum tilskipun- um eða óbeint með hvatningu, hvort fyrirtæki og einstakling- ar standi í samkeppni; hvort landið sé einangrað eða þáttur milliríkjasamskipta mikill. Þannig hefur sænskur fræðd- maður lagt til, að alls átta at- riði verði lögð til grundvallar við flokkun hagkerfa. í stuttu erindi gefst ekki tími til að glíma við svo flókna skilgrein- ingu, og verður því að einfalda málið nokkuð, en þá er skyn- samlegast að miða niðurröðun hagkerfa við hátt þann, sem hafður er á ákvarðanatöku. Vald til ákvörðunar um fram- leiðslu, neyslu, vinnu og annað, sem til efnahagsmála heyrir, getur legið hjá heimilum, fyrir- tækjum, sveitarfélögum, lands- hlutasamtökum, ríkisstjórn eða ríkjasamsteypu. Hinar þjóðfé- lagslegu andstæður, sem hér blasa við, eru annars vegar valddreifing og hins vegar vald- söfnun. Ef dreifing valds er mikil ákvarðar heimilisfólk og einstaklingar, hvar í landinu sem þeir búa, hvaða störf þeir vinna, skiptingu ársins í frí- stundir og vinnustundir og hvaða vöru og þjónustu þeir kaupa, en fyrirtæki ákveða meðal annars staðsetningu verksmiðju, fjárfestingu, fram- leiðsluaðferð, framleiðsluvöru, FV 6 1975 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.