Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1975, Side 77

Frjáls verslun - 01.09.1975, Side 77
# Hdftel Esfa, Suðurlandsbraut Hótel Esja, við Suðurlandsbraut, rúm- ar um 270 hótelgesti, en þar er einnig veitingabúð á efstu hæð. Þar komast um 70 manns í sæti. Þar er matur borinn á borð gesta og geta gestir valið rétt dagsins á hóflegu verði, eða úr úrvali sérrétta, einnig á hóflegu verði. Við hliðina á veitingabúðinni er bar, sem opinn er á löglegum tímum og geta gest- ir veitingabúðar keypt sér þar borðvín með matnum. Þrír veislu- og fundarsalir eru í húsinu og er unnt að sameina þá í einn 200 manna sai. Þeir eru leigðir út. í anddyri er söluskrifstofa flugfélaganna og minjagripaverslun, og banki er við hliðina. í Iþessum mánuði tók ný veit- ingabúð til starfa á 1. hæð hússins og mun hún rúma 260 gesti í sæti. Veiftingastaðir án vínveitingaleyfis # Askur, Suðurlandsbraut Veitingastaðurinn Askur, Suðurlands- braut 14, er opinn alla daga frá kl. 9 til 23,30, og er þar rúm fyrir 35 gesti í sæti í senn, Þar er einkum maelt með völdum ; kjúklingum og mun Askur selja meira af kjúklingum en nokkur annar veit- ingastaður í borginni. Einnig er mælt með glóðarsteiktu nautakjöti og kín- verskum pönnukökum, en Askur bauð fyrstur veitingastaða hér upp á þær. Starfsfólk er um 20 manns. Verulegt hlutfall framleiðslunnar er selt út úr húsinu í skömmtum og einnig er al- gengt að fól’k kaupi einstaka hluti af matseðli Asks, sem fal'la inn í matar- gerð í heimahúsum, svo sem sósur, salöt o. fl. # Brauðbær, Þórsgötu Veitingastaðurinn Brauðbær, Þórs- götu 1. er opinn frá kl. 9 til 23,30 alla daga og komast þar 44 gestir í sæti. Þar er sérstakur réttur dagsins í hádegi en einnig er mælt með nauta- og lamba- steikum og fiskréttum, af matseðli stað- arins. Þá liggur frammi sérstakur barna- matseðill og góðu börnin, sem klára matinn sinn fá ókeypis ís í verðlaun. Eins og nafn staðarins bendir til er mik- ið framleitt þar af smurðu brauði og er mikið af því ásamt heitum og köldum veisluréttum, selt út. Starfslið er um 30 manns og hljómlist er leikin af segul- böndum allan daginn. # Koklihúsið, Lækjargöftu Kokkhúsið er veitingastaður í Lækj- argötu 8 og er hann opinn frá kl. 9 til 21 virka daga og frá 10 til 21 á sunnu- dögum. 45 til 50 gestir rúmast þar í sætum í senn. í Kökkhúsinu er réttur dagsins bæði í Ihádeginu og á kvöldin og er það svonefndur heimilismatur. Fjöldi annarra rétta er einnig á matseðlinum og eru þeir fáanlegir allan daginn. Staðurinn selur mikið af mat út svo sem í veislur, og er bæði unnt að kaupa það- an kalda og heita rétti. # Hóftel Hof, Kauðarárstíg Hótel Hof, Rauðarárstíg 18, er ný tek- ið til starfa og tekur það 62 hótelgesti. Þeir eiga nú kost á morgunmat þar. Inrn an tíðar vex’ður opnuð þar 60 manna veitingabúð, tveir barir, gufubað og 200 manna fundar- og veislusalur, sem verð- ur leigður út. Reiknað er með að þetta verði komið til framkvæmda um næstu áramót. # IMýi bær, Síðumúla Veitingastaðurinn Nýi bær er að Síðu- múla 34 og er hann opinn frá kl. 9 til 21 daglega. Hægt er að skipta staðnum í tvær einingar en sameiginlega komast 115 gestir þar í sæti. Þar er réttur dags- ins á boðstólum og auk þess er mælt með kjúklingum og ýmsum smáréttum. Þjónustufólk er upp í 18 manns. Tals- vert er selt út af mat. Hægt er að skipta FV 9 1975 77

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.