Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 7
i stnitn máli
# Perlusteinsútflutningur
Sem kunnugt er hófst á s.l. vetri til-
raunaframleiðsla á þöndum perlu-
steini á vegum Gosefnanefndar. Nú er
að fara af staö samvinna um vöruþró-
un og markaðsathuganir milli Gos-
efnanefndar og Álborg Portland, Ál-
borg. Nýlega fór fram á Jótlandi
samningaviðræður um tilraunakaup
danskrar verksmiðju á þöndum perlu-
steini, en þessir aðilar framleiða bygg-
ingaplötur, sem þola mikinn hita.
Ekki reyndist unnt aö ganga frá kaup-
unum að þessu sinni en væntanlega
verður þaö síðar í haust.
# Útflutningsaukning hjá Hildu
Útflutningur Hildu hf. á ofnum, vél-
og handprjónuðum fatnaði hefur
gengið mjög vel, það sem af er þessu
ári. Þær flíkur, sem hannaðar voru af
bandaríska hönnuðinum William Ron-
dina hafa hlotið betri móttökur en
nokkurn óraði fyrir. Framleiðendur
fatnaðarins eru; Drífa á Hvamms-
tanga, Dyngja hf. á Egilsstööum,
Katla hf. Vík, Prjónastofa Borgarness,
Borgarnesi, Sunna Hvolsvelli og Max
hf. Reykjavík. I upphafi ársins áætl-
aði Hiída hf. að flytja út vörur fyrir
170 milljónir króna en útflutningur-
inn mun í raun fara langt yfir þaö
mark.
# Bæklingur IJtanríkisráðu-
neytisins
1 byrjun október er áætlað að út
komi litprentaður bæklingur, sem Ut-
anríkisráðuneytið gefur út um ís-
lenzkar iðnaðar- og tilbúnar mat-
vörur, í samvinnu við Viðskipta-
ráðuneytið, Útflutningsmiðstöðina og
hina einstöku útflytjendur. Bæklingur
þessi er prentaöur í tuttugu þúsund
eintökum og verður honum dreift í
gegn um sendiráö og ræðismanna-
skrifstofu Islands erlendis. Auk þess
munu Viðskiptaráðuneytið og Útflutn-
ingsmiðstöðin taka að' sér dreifinguna
að hluta.
# Stærstu kaupfélögin
Samtökin INTER-COOP eru sam-
starfsvettvangur samvinnuheildsölu-
fyrirtækja í 19 löndum Austur- og
Vestur-Evrópu, og auk þess í ísrael og
Japan. Nýlega birtust upplýsingar um
tíu veltuhæstu kaupfélögin innan
INTER-COOP, og eru þau þessi (velt-
an talin í milljónum dollara):
1) Konsum Stockholm (602 millj.
$), 2) CRS Manchester (412 millj. $),
3) DB, Danmörku (360 millj. $), 4)
Coop Gyor, Ungverjalandi (357 millj.
$), 5) Nada-Kobe Coop, Japan (333
millj. $), 6) WSS Katowice, Póllandi
(332 millj. $), 7) U.d.C. de Lorraine
Nancy, Frakklandi (323 millj. $), 8)
Coop Reg. Saintes, Frakklandi (308
millj. $), 9) ASKO, Saarbriicken (290
millj. $), 10) Produktion, Hamborg
(271 millj. $).
Það fylgir fréttinni, að víðast hvar í
aðildarlöndunum fari kaupfélaga-
verzlunum fækkandi, vegna þess aö
litlar búðir séu lagðar niður, en aðrar
stærri og færri leysi þær af hólmi.
Þessi þróun var greinileg í öllum að-
ildarlöndum INTER-COOP í Vestur-
Evrópu á s.l. ári, nema í einu landi,
íslandi. Samkvæmt skýrslunum fjölg-
aði kaupfélagabúðum hér um eina, úr
198 í 199.
# Vinsælir jakkar
Arið 1971 var hafin framleiðsla á
tveim ullarjökkum hjá Pólarprjón á
Blönduósi. Jakkar þessir hlutu fram-
leiðslunúmerin 8000 og 8008 og Ála-
foss hefur selt þá á erlendum markaði.
Nú hafa verið framleiddir yfir 40.000
stj kki af þessum jökkum, þar af voru
framleidd 15.000 stykki 1975 og 13.000
stykki það sem af er 1976. Af þessu má
ljóst vera að jakkarnir vinna stöðugt á
og verður spennandi aö sjá hver fram-
leiöslan verður á næstu árum.
FV 9 1976
7