Frjáls verslun - 01.09.1976, Blaðsíða 29
Innflutningur
(Leiðarvísir fyrir byrjendur)
Grein eftir Leó IVI. Jónsson, rekstrartæknifræðing
Hver dregur dám af sínum sessunaut og þar sem 'það er venja á íslandi að lofa upp í ermina
þá hefur það komið fyrir niig eins og aðra. Ætlunin var að skrifa grein ,um það umstang, sem
af því hlýzt að þurfa að flytja aftur til landsins varning, sem fluttur var út vegna vörusýninga
eða tilrauna. Við nánari athugun kom nefnilega í ljós að málið er þannig vaxið að það þolir tæpast
dagsljós, og gæti þar að auki orðið til þess, að allur útflptningur iðnaðarvara, sem ekki eru þegar
fluttar út, yrði aldrei reyndur og væri það skaði. Ekki þykir ástæða til að sá fleiri fræjum
vonleysis sem hvort eð er hefur heltekið þessa þjóð. Þess í stað verður fjallað ,um innflutning á
breiðum grundvelli.
# Hvað þarf aðgera?
Hafirðu pantað vörur erlend-
is frá og fengið staðfestingu á
því að pöntunin hafi borist er-
lenda aðilanum þá þarft þú að
ganga frá greiðslu til hans eða
skuldbindingu ef um lánskjör
er að ræða. Til þess þarf að
leita til einhvers af þeim bönk-
um eða útibúum þeirra sem
leyfi hafa til gjaldeyrissölu. Ef
um er að ræða greiðslu gegn
farmskjölum (CAD) hafa þau
borist þeim banka sem þú hef-
ur bent á sem þinn viðskipta-
banka. Fyrst þarf að sækja um
á sérstöku eyðublaði að fá
keyptan gjaldeyri af bankan-
um. Sú umsókn er afgreidd á
nokkrum dögum. Þegar þú hef-
ur greitt bankanum í íslenzk-
um krónum upphæð kröfunnar
eru þér afhent farmskjölin með
greiðslustimpli bankans.
Hafi svo um samist að til
tryggingar greiðslu skuli vera
óafturkræf ábyrgð banka (ir-
revocable letter of credit) þarf
að sækja um slíka ábyrgð til
bankans á sérstöku eyðublaði
sem fæst í bönkunum. Starfs-
fólk bankans aðstoðar við að
fylla út slíka umsókn ef þess
er óskað. Ábyrgðin er síðan
keypt af bankanum og sér
hann um að tilkynna það hlut-
aðeigandi aðila erlendis. Venju-
lega er varan ekki send af
stað fyrr en staðfesting banka
hefur borist um að ábyrgð hafi
verið opnuð. Bankar hafa með
sér samvinnu í þessum efnum
þannig að ef erlendi aðilinn
fer fram á að ábyrgð sé opnuð
fyrir vissri upphæð í erlendri
mynt hjá ákveðnum banka er-
lendis, þá annast íslenzki bank-
inn slíka millifærslu. Með
beiðni um opnun ábyrgðar þarf
að fylgja umsókn um þann
gjaldeyri sem ábyrgðin tiltek-
ur. Hafi ábyrgð verið opnuð
berast farmskjölin annað hvort
þér beint eða eru send bank-
anum.
# Leyst út úr tolli
Ef varan er komin til lands-
ins þá þarf ákveðin gögn til
að hægt sé að tollafgreiða
hana. Ef varan er keypt CIF
þýðir það að þegar hefur ver-
ið greitt fyrir flutning og
tryggingu hennar með ábyrgð
og greiðslu eða með því að
greiða erlendu kröfuna í bank-
anum. Sé varan flutt inn FOB
ákveðna höfn erlendis þarf að
greiða bæði flutningsgjald og
tryggingu áður en hægt er að
ganga frá aðflutningsskýrslu.
Ef skilmáli var FOB verður
framkvæmdaröðin þessi:
— Greiða kröfu í banka.
— Greiða flutningsgjald og
tryggingu.
— Fá farmskjölin stimpluð í
gjaldeyriseftirliti Seðlabank-
ans.
Næst er að fylla út aðflutn-
ingsskýrslu, en áður en byrjað
er á því skulum við athuga
nokkur smáatriði.
Aðflutningsgjöld eða tolla
skal greiða af vöruverði og öll-
um erlendum kostnaði vegna
afgreiðslu vörunnar svo og
flutningsgjöldum öllum frá
útskipun til hafnar á fslandi.
Hvort sem varan var tryggð
eða ekki þá skal greiða að-
flutningsgjald af tryggingar-
iðgjaldi sem nemur 1% af
FOB-verðmætinu. Uppskipun-
argjald, flutningur í vöru-
FV 9 1976
29