Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 21

Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 21
Samgöngur: INiorðmenn hefja vöruflutninga á bílum frá Osló til Persaflóans Ferðin tekur 20 daga. Vörur eru teknar víða í Evrópu Elgir og úlfaldar, hríðarbyljir og sandstormar skapa vissar hættur fyrir flutningabílana, sem aka á lciðinni milli Osló og Dubai. í Noregi er,u bílstjórarnir varaðir við elgnum, sem kynni að fara þvert yfir veginn fyrirvaralaust. í Qatar eru skilti við veginn, sem hvetja vegfarendur til að gæta sín á úlföldunum, sem gætu álpazt út á þjóðveginn. Einn af bilunum, sem aka milli Osló og Dubai kominn á suðlægar glóðir. Þetta eru aðeins fá af vanda- málum bílstjóranna á lengstu vöruflutningaleið bifreiða sem fyrirfinnst í heiminum um þess- ar mundir, leiðinni Oslo-Dubai- Oslo, en hún er 7332 kílómet- rar. • Stórhríð í Tyrklandi Til allrar hamingju hafa um- ræddar dýrategundir ekki vald- ið neinu tjóni á mönnum né tækjum í sambandi við þessa flutninga. Veðrið getur aftur á móti orðið meira áhyggjuefni. Það er til dæmis alls ekki óvanalegt að í einni og sömu ferðinni þurfi bílstjórarnir að brjótast í gegnum eyðimerk- ursandstorm og fannfergi. Fram til þessa hefur hið síðar- nefnda aðallega gert bílstjór- unum lífið leitt. í fyrstu ferð- inni, sem farin var á þessari löngu leið, mættu vöruflutn- ingabílnum verstu hríðarbylj- ir, sem sögur fara af í hálendi Tyrklands um tuttugu ára skeið. Til marks um það hve ástandið var alvarlegt má nefna, að fimmtán manns, sem reyndu að hafast við í óupphituðum einkabílum sín- um, fórust úr kulda. # „Dubai Express” Dubai Express, eins og þessi flutningaleið er kölluð, er ný af nálinni og enn hafa aðeins verið famar tólf ferðir. Þær hafa gengið án nokkurra tæknilegra örðugleika, ef frá er talið tap á Volkswagen- „rúgbrauði“, sem týndist í eyðimerkursandinum. í bíln- um voru kvikmyndatöku- menn með vélar sínar og ætl- uðu þeir að gera kynningar- kvikmynd um þessa nýju flutningaleið. Flakið af bílnum er nú sennilega falið í einhverj- um sandhólnum á leiðinni mi.lli Doha og Dubai en kvikmynda- tækjunum tókst að bjarga. Að baki þessum flutningum er samstarf norskra og sænskra aðila. Fyrirtækin, sem þar koma við sögu, eru Sundbye-TTO and Maritime Protection A/S í Noregi, sem hefur mikla reynslu í flutning- um í Miðausturlöndum, sænska fyrirtækið Gulf Agency Company í Dubai og A/S Air- contact Cargo í Noregi, sem hefur í fjögur ár stundað flutninga á varahlutum í skip flugleiðis til Dubai. Bílarnir á Dubai Express leiðinni hafa hingað til farið hálfsmánaðarlega frá Oslo en nú er endanlega ákeðið að taka upp vikulegar ferðir, þar sem flutningamagnið krefst þegar þeirrar ferðatíðni. Vör- urnar, sem þannig eru fluttar til Miðausturlanda eru aðallega varahlutir í skip. Síðasta áfangann eru þeir fluttir um borð í skipin með bátum frá höfninni í Dubai. # IMóg að flytja Þar að auki hefur hröð iðn- aðaruppbygging í þessum FV 9 1976 21

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.