Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 49

Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 49
Þegar F.V. heimsótti Eskifjörð nýsöltuðum fiski. hefi haft gaman af því að fylgj- ast með kolmunnaveiðunum í sumar, og hefi mikla trú á því að kolmunninn geti gefið af sér margvísleg hráefni á næst- unni, en fyrst og fremst held ég að hann verði veiddur til bræðslu. SKUTTOGARINN BREYTTI ÖLLU F. V.: Þið voruð með þeim fyrstu að hefja útgerð skuttog- ara á íslandi, og það á tímum þegar menn voru ekki almennt of hrifnir af skuttogarakaup- um. Hverju breytti koma togar- anna fyrir fyrirtækið, og livern- ig er rekstri fyrirtækisins hátt- að í stórum dráttum nú, og hve margt er starfsfólkið? Aðalsteinn: Já, það er rétt, var saltfiskhúsið svo til fullt af að við vorum, ásamt Norðfirð- ingum, fyrstir til að hefja rekstur , skuttogara, en árið 1972 kom Hólmatindur, sem var byggður í Frakklandi. Við komu togarans varð öll hrá- efnisöflun öruggari þannig að öll vinnsla varð stöðugri hjá frystihúsinu og saltfisk- og skreiðarvinnslunni. Við endur bætur frystihússins vai’ð svo ljóst, að einn togari væri ekki nægilegur til hráefnisöflunar, og því var Hólmanes keypt í samvinnu við K. H. B., eins og áður segir, og með afla þessara tveggja skipa er fyrirtækinu séð fyrir nægum bolfiskafla, þegar við bætist sá afli sem það fær af öðrum skipum sem frá Eskifirði eru gerð út. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda. hvar við stæðum nú, hefðu tog- ararnir ekki komið til sögunn- ar. Þú spurðir um rekstur fyrir- tækisins nú. Hann er orðinn all margbrotinn, en sjálfsagt að gefa lauslegt yfirlit yfir hann. Fyrirtækið rekur nú hraðfrysti- hús, saltfisk- og skreiðar vinnslu, síldar (loðnu) bræðslu, IV2 togara, en bæði skipin hafa alla afgreiðslu hér á Eskifirði, veiðarfæragerð, véla- og bif- reiðaverkstæði, þurrkhús, og svo er söltuð síld hjá Jóni Kjartanssyni h.f., og kannske gleymi ég einhverju. Starfs- mannafjöldi er nokkuð breyti- legur en trúlega oft um 200 manns, það er fimmti hver Esk- firðingur. Vinnslan er stöðug að heita má árið um kring, nema hvað bræðsluna vantar tilfinnanlega hráefni mikinn hluta ársins, og þó svo að loðn- an sé ágæt, og gaman að taka við henni til bræðslu, þá vant- ar hana samt þann ,,sjarma“ er síldinni fylgdi. F. V.: Nú ert þú Aðalsteinn, landskunnur undir nafninu „Alli ríki“. Hvernig varð þér við þegar þú heyrðir það nafn í fyrstu? Aðalsteinn: Þegar ég heyrði þetta nafn fyrst, vissi ég að fólk sagði það í háði. En það var blaðamaður á Þjóðviljanum sem sá um að opinbera nafnið ,,Alli ríki“ fyrir landsmönnum, og ég hefi ekki tapað á því að hafa fengið þessa nafngift, en menn geta verið ríkir á ýmsan hátt. Ég held, að maður sem er bjartsýnn og ólatur verði aldrei fátækur. Ármúla 22. Sími 32140 Alls konar auka- hlutir í allar gerðir bifreiða FV 9 1976 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.