Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1976, Page 55

Frjáls verslun - 01.10.1976, Page 55
JARÐGUFAN NOTUÐ TIL ÞURRKUNAR Léttsteypan hefur ekki gert mikið til að auglýsa upp þessa nýju framleiðslu, en nýjimgar spyrjast þó fljótt og eftirspurn eftir steinum frá fyrirtækinu hefur verið betri á þessu ári en oft áður. — Áður en við förum að auglýsa þetta verðum við að ná upp meiri afköstum, sagði Arnþór. — Þá þurfum við að stækka húsnæðið, koma okkur upp öðrum þurrkklefa, en við nýtum auðvitað jarðgufuna til að þurrka steinana, og svo þarf að koma upp sérstökum rekk- um eða grindum til að raða óþurrkuðum steinum á. Til þess að tvöfalda framleiðsluna þyrftum við að útvega okkur 60 rekka í viðbót, en hver þeirra kostar 100 þúsund, svo þar er strax komin fjárfesting upp á 6 milljónir. Það getur orðið erfitt að finna sjóði sem vilja lána það fé. GRUNDVÖLLUR FYRIR MEIRI FRAMLEIÐSLU Arnþór hefur trú á því að grundvöllur sé fyrir miklu meiri framleiðslu af þessari tegund steina og markaðurinn sé hvergi nærri fullnýttur. — Við gætum líka boðið upp á samkeponisfært verð á Suður- landi, þrátt fyrir flutnings- kostnað, sagði hann. — Við seljum mest af framleiðslunni í sveitunum í kring og til Ak- ureyrar. Eitthvað selst svo líka til Austfjarðanna. — Hjá okkur stendur til að reyna að auka framleiðsluna eftir megni, sagði Arnþór. — Verk- smiðja Léttsteyp- unnar við Bjarnar- flag hjá Mývatni. Þegar hún fer að aukast getum við kannski farið að auglýsa þetta eitthvað upp, en núna höfum við ekki undan að fram- leiða upp í pantanir. Við höfum aðeins kannað möguleika á út- flutningi á framleiðslunni og höfum við fengið mjög jákvæð- ar upplýsingar um eiginleika efnisins. Annars veitti okkur ekki af að 'hafa tæknifræðing hjá okkur til að gera tilraunir með þetta efni, því það hefur örugglega upp á marga mögu- leika að bjóða. Við höfum ver- ið að reyna ýmislegt sjálfir, t.d. að blanda kísilgúr saman við hráefnið og hefur það orðið til þess að gera efnið þjálla og meðfærilegra í framleiðslunni, en við vitum ekki hvað það gerir efninu að öðru leyti. Við höfum hugsað okkur að auka líka við tegundir af steinum og erum m.a. með áætlanir um að byrja að framleiða munstr- aðar plötur sem hægt er að nota í girðingar og fleira. GOTT BYGGINGAREFNI Hjá fslendingum hefur alitaf gætt svolítils ótta við hlaðin hús, en Arnþór er sannfærður um að steinarnir frá Léttsteyp- unni séu gott byggingarefni. — Vikursteinarnir ssm einu .sinni voru notaðir reyndust ekki vel, saeði Arnþór, — en hér er um allt annað efni að ræða. Þetta er bæði létt og sterkt og þolir meira að segja jarðskjálfta al- veg ágætlega. Það tekur bara tíma að kynna fólki þetta og leyfa því að venjast því að nota ný efni, sagði Arnþór Björns- son að lokum. Eskifjörður: Ný grunnskóla- bygging stærsla verkefnið Rætt við Jóhann Clausen, sveitarstjóra íbúum á Eskifirði hefur fjölgað (iltölulcga mikið hin síðustu ár, enda er og hefur verið mikill uppgangur á staðn- um. íbúatalan er nú farin að nálgast 1100 og fyrir tveimur árum fékk bærinn kaupstaða- réttindi. Fjölgun íbúa hefur að sjálf- sögðu krafizt aukinna fram- kvæmda af hálfu bæjarfélags- ins og þá ekki sízt í skólamál- um. Það getur líka talist ein- kenni fyrir Eskifjörð hve þrifa- legur kaupstaðurinn er, og hafa bæjaryfirvöld lagt sérstaka rækt við að halda bænum sem snyrtilegustum, og leggja mik- ið upp úr því að vel takist til. Samhliða þessu stendur bærinn í miklum byggingaframkvæmd- um á leiguíbúðarhúsnæði og þar eru nú byggðar fyrstu „stallaíbúðirnar“ hér á landi. Þegar Frjáls verslun heimsótti Eskifjörð fyrir skömmu, hitti blaðið Jó'hann Clausen sveitar- stjóra að máli og bað hann að segja frá því helzta, sem um væri að vera á Eskifirði. NÝR GRUNNSKÓLI — Fyrst og fremst má nefna, að við höfum hafist handa með byffginffu 1850 fermetra grunn- skóla, sasði Jóhann. Grunnur byggingarinnar var steyptur í fyrra og er þetta helzta fram- kvæmdin hér á staðnum í ár og verður ugglaust næstu ár. Þessi nýi skóli kemur í stað þess gamla sem var byggður árið 1912 og því tími til kominn að bvggja nýjan skóla. Við áætl- um að vinna fyrir 14 millj. króna á þessu ári, en ríkið FV 10 1976 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.