Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1976, Síða 71

Frjáls verslun - 01.10.1976, Síða 71
Bandag hjólbaröasólunin hf. Kaldsóla 22 stóra hjólbarða á dag — Bandagsólun er frábrugdin öðrum sólunaraðferðum Hjólbarð- arnir eru skoðaðir og gert er við' þá áður en sólning fer fram. Hér er verið að sóla hjólbarða, sem þegar hefur verið skoðað’ur. Bandag hjólbarðasólunin hf. er nýlegt fyrirtæki, stofnað fyrir þremur árum, en starf- semi þess er að Dugguvogi 2, í nýjasta húsinu, sem risið hefur í Iðnvogahverfinu, en auk þess eru 7 önnur fyrirtæki starfandi í húsinu. Bandag hjólbarðasól- unin sólar aðallega hjólbarða á stórar flutningabifreiðir og vörubíla með kaldsólun. F.V. heimsótti Bandag hjól- barðasólunina og ræddi við framkvæmdastjórann Guð- mund I. Guninlaugsson til að fræðast betur um Bandag kald- sólun. Sagði Guðmundur, að Bandag hjólbarðasólun væri á margan hátt frábrugðin öðrum hefðbundnum sólunaraðferð- um, að því leyti að í stað þess að sjóða hrágúmmí á hjólbarð- ann er settur á hann tilbúinn sóli sem límdur er á og aðeins er notaður lítill hiti til þess að flýta fyrir límingu. Notaður er sami hiti og algengur er á hjól- börðum í akstri, þannig að hjól- barðinn heldur öllum styrk- leika sínum. Bandag hjólbarðasólunin er umboðsaðili bandaríska stór- fyrirtækisins Bandag Incorpo- rated, en fyrirtæki þetta hef- ur útibú í öllum heimsálfum og auk þess umboðsaðila í u.þ.b. 100 löndum. KALDSÓLA 22 VÖRUBÍLA- DEKK Á DAG Það tekur einn sólarhring að kaldsóla hjólbarða, en kaldsól- unin fer þannig fram, að byrj- að er á þvi að skoða og gera við hjólbarðann, en síðan er hann settur á sérstakan rennibekk, sem rennir hann til þess að sléttur flötur fáist og auk þess er jafnvægi barðans tryggt. Því næst er hjólbarðinn tekinn aft- ur til skoðunar og allar holur og göt, sem kunna að vera á slitfletinum fyllt. Að því loknu er sólinn settur á hjólbarðann með því að valta hann niður með þrýstivalsi og hanm síðan settur í gúmmíum- slag og á sérstaka felgu. Að síðustu er hjólbarðinn sett- ur inn í þrýstiklefa, þar sem hann er í 4 klukkustundir við 90° hita. Guðmundur sagði, að Bandag hjólbarðasólunin gæti að jafn- aði sólað 22 vörubíladekk eða stór dekk á dag. Bæði Strætis- vagnar Reykjavíkur og Kópa- vogs notfæra sér þjónustu Bandag og ennfremur mörg fyrirtæki, sem hafa stóra bíla til umráða. Þessi þjónusta á ekki eingöngu við um stóra hjólbarða, því mikið er einnig um kaldsólun á fólksbílahjól- börðum. SMÁSKORUMUNSTUR í STAÐ SNJÓNAGLA Bandag fyrirtækið hefur einkaleyfi á sérstöku smáskoru- munstri, sem kallast „Micro- sipe“, en í því eru margar þétt- ar skorur, sem skornar eru með beittu blaði þvert yfir munst- urbarðann. Hafa þessir hjól- barðar mikla spyrnu í snjó og eru þegar byrjaðir að leysa nagla i dekkjum af hólmi. Sagði Guðmundur að lokum, að Bandagsólaðir hjólbEirðar væru þrefalt endingarbetri en heitsólaðir hjólbarðar, og jafn- framt væru þeir 20—50% end- ingarbetri en nýir hjólbarðar, auk þess sem Bandagsólaðir hjólbarðar væru mun ódýrari en nýir. Byggir hann þetta á rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessu hjá Bandag fyrir- tækjasamsteypunni í U.S.A. FV 10 1976 fi7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.