Frjáls verslun - 01.10.1976, Síða 85
Ritfangaverzlunin Penninn:
Veitir viðskiptavinum nýja þjónustu
— Allir nauðsynlegir hlutir til skrifstofureksturs
Ritfangaverslunin Penninn
í Hallarmúla 2 hefur tekið
upp þá nýbreytni í þjónustu
sinni að bjóða viðskiptavinum
sínum alla nauðynlega hluti til
að halda uppi skrifstofurekstri
og á það ekki eingöngu við
skrifstofuvélar og tæki, heldur
einnig húsgögn og annað er
þarf til að innrétta skrifstofur.
Er þetta nýjung hér á landi og
hefur ekkert annað fyrirtæki
boðið slíka þjónustu.
Benedikt Kristjánsson veitir
þessari nýju þjónustudeild
Pennans forstöðu og hjá hon-
um fékk F.V. nánari upplýsing-
ar.
Benedikt sagði, að í fyrsta
lagi mundi þjónusta þessi
byggjast á því eins og áður
sagði að væntanlegir viðskipta-
vinir gætu fengið alla mögu-
lega hluti og taeki til skrifstofu-
reksturs, þ.e.a.s. ritvélar,
reiknivélar, tölvur, hillur og
einnig teppi og húsgögn. Einn-
ig öll nauðsynleg gögn fyrir
arkitekta, auglýsingateiknara,
tækniteiknara og fleiri sér-
hæfða starfshópa. Þessari þjón-
ustu væri hægt að líkja við
stóran pakka og í honum væri
öll hugsanleg nútíma hagræð-
ing fyrir stjórnendur ýmissa
fyrirtækja, hvar sem væri á
landinu og hver pakki sniðinn
samkvæmt ósk viðskiptavina.
Með þessu móti, sagði Bene-
dikt, fá væntanlegir viðskipta-
vinir óskir sínar uppfylltar og
spara sér óþarfa amstur og
tíma.
PANTANIR AFGREIDDAR A
NOKKRUM DÖGUM
Þjónustudeildin er þegar
tekin til óspilltra málanna
og spurðum við Benedikt
hvað þessi þjónusta kostaði.
Tjáði hann okkur að þjónustan
sem slik kostaði ekki neitt. Það
eina sem væntanlegir við-
skiptavinir borga er upphæð
þeirra vörutegunda sem þeir
óska eftir að fá og að sjálfsögðu
sendingarkostnaður ef varan er
send út á land.
Við spurðum Benedikt
Kristjánsson hve löngum af-
greiðslutíma væntanlegir við-
skiptavinir ættu að reikna
með og svaraði hann, að pant-
anir yrðu afgreiddar á nokkr-
um dögum og ekki væri um
undantekningu að ræða nema
þegar varan væri sérstaklega
pöntuð erlendis frá, t.d. ef við-
skiptavinir óskuðu eftir sér-
stökum skjalaskáp, peninga-
skáp, reiknivél eða tölvu. Skrif-
borð, stólar lampar og öll
venjuleg skrifstofuáhöld væru
jafnan fyrir hendi og afgreidd
innan nokkurra daga frá pönt-
un.
ÁBYRGÐARTÍMI Á ÖLLUM
VÖRUNUM
Á öllum vörum sem afgreidd-
ar eru frá þjónustudeild Penn-
ans er sérstakur ábyrgðartími
og ef viðskiptavinur verður
fyrir því að fá skrifstofustól
með gölluðu áklæði, þá fær
hann annan stól sem hann get-
ur notað á meðan verið er að
gera við hinn. Gildir þetta um
alla aðra hluti sem keyptir eru
hjá þjónustudeild Pennans við
Hallarmúla 2.
Að lokum sagði Benedikt
Kristjánsson. — Vert er að
minnast á það, að við munum
einbeita okkur að því að reyna
að uppfylla allar óskir vænt-
legra viðskiptavina og munum
ef svo ber undir senda fyrir-
spurnir til erlendra fyrirtækja
ef viðskiptavinir hér heima vita
til þess að sérstakt tæki er til
á erlendum markaði, sem þeir
þurfa nauðsynlega á að halda
fyrir atvinnurekstur sinn hér.
Það má eiginlega segja sagði
Benedikt, að við útvegum við-
skiptavinum allt nema einkarit-
ara.
Nýju þjón’ustunni fylgja ekki eingöngu skrifstofuvélar og tæki,
heldur cinnig skrifborð, stólar, hillur, teppi og húsgögn m.a.
FV 10 1976
81